Bæjarstjórn Grindavíkur - 552. fundur
- 23.01.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:20
- í ráðhúsi Reykjavíkurborgar
- Fundur nr. 552
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar leggur forseti til að mál fundarins verði rædd fyrir luktum dyrum.
Samþykkt samhljóða.
Forseti óskar eftir heimild til að taka inn mál með afbrigðum sem 2. mál: 2312003 - Tjón á mannvirkjum vegna jarðskjálfta og landriss í Grindavik 2023
Samþykkt samhljóða
1. Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hjálmar, Hallfríður, Gunnar Már, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Sævar og Birgitta Rán.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón Bragason sátu fundinn undir þessum dagskrárliðs.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sólberg Bjarnason, Víðir Reynisson, Hjördís Guðmundsdóttir og Björn Oddsson frá Almannavörnum. Kynntu þau stöðuna frá sjónarhóli Almannavarna og svöruðu fyrirspurnum.2. Tjón á mannvirkjum vegna náttúruhamfara í Grindavik
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Hjálmar, Guðjón, Gunnar Már, Birgitta Rán, Hallfríður og bæjarstjóri.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón Bragason sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram yfirlit frá NTÍ, dags. 18. janúar 2024 vegna tjónaðra húsa.
Uppfærður listi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands lagður fram þar sem óskað er afstöðu bæjarstjórnar til þess hvort viðgerð og/eða endurbygging húsa verði heimil, sbr. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 55/1992 um NTÍ. Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, fór yfir listann og sýndi á korti hvar fasteignirnar standa meðal annars m.t.t. sprungusvæða og hraunflæðis. Jafnframt gerði hann grein fyrir því að listinn geti ekki skoðast sem endanlegur, NTÍ muni áfram taka við tilkynningum um tjón vegna jarðhræringa og frekari skemmdir á fasteignum eiga enn eftir að koma í ljós.
Í framhaldi af erindi NTÍ er eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar heimilar ekki endurbyggingu á eftirtöldum lóðum fyrr en hættumat og endurskoðaðir skipulagsskilmálar fyrir umræddar lóðir liggur fyrir. Um er að ræða eftirtaldar lóðir með eignum sem Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) hefur metið sem altjón á einum eða fleiri matshlutum.
Efrahóp 16
Efrahóp 18
Efrahóp 19
Melhólabraut 4
Stamphólsvegur 2
Samþykkt samhljóða.3. Fasteignagjöld 2024
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Gunnar Már og Sævar.
Málinu er frestað til næsta fundar.4. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Hjálmar.
Fundargerð 941. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 12. janúar 2024 er lögð fram til kynningar.