Bæjarstjórn Grindavíkur - 596. fundur
- 12.05.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 596
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Birgitta Hrund sat fundinn í Teams.
1. Ársuppgjör 2025 - Grindavíkurbær og stofnanir
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, launafulltrúi og frá KPMG Lilja Dögg Karlsdóttir, endurskoðandi bæjarins.
Til máls tóku: Ásrún, Lilja Dögg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Hallfríður.
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2025 er lagður fram til síðari umræðu.
Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkir samhljóða ársreikning Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2025 og staðfestir hann með áritun sinni.2. Aðalskipulagsbreyting vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og launafulltrúi.
Til máls tóku: Ásrún og Guðjón.
Lögð er fram uppfærð tillaga um óverulega aðalskipulagsbreytingu vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi. Tillagan er lögð fram aftur í kjölfar viðbragða HMS og fundar með HMS 7. maí sl.
Innviðanefnd tók fyrir og afgreiddi uppfærða tillögu eftir viðbrögð HMS á fundi nr. 17. Innviðanefnd gerði ekki athugasemd við tillöguna og vísaði henni til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða aðalskipulagstillöguna og að málsmeðferð hennar sé í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.3. Orkuvinnsla í Eldvörpum - Umsókn um skipulagsbreytingar
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og launafulltrúi.
Til máls tóku: Ásrún og Guðjón.
Umsagnir við skipulagslýsingu lagðar fram ásamt uppfærðum vinnslutillögum aðalskipulagsbreytingar og nýs deiliskipulags fyrir iðnaðarsvæði i4 í Eldvörpum.
Aðalskipulagsbreytingin fjallar m.a. um eftirfarandi atriði:
- Afmörkun á stækkun á iðnaðarsvæði i4 fyrir nýtt niðurdælingasvæði á sveitarfélagauppdrætti
- Afmörkun lagnabeltis á milli orkuvinnslusvæða og Svartsengisvirkjunar
- Breytingar á skilmálum um stærð borteiga
- Auknar heimildir fyrir Svartsengisvirkjun úr 74,4 MW í 110 MW.
Í tillögu að nýju deiliskipulagi eru m.a. skilgreind svæði fyrir borteiga, niðurdælingu, mannvirkjabelti ásamt því að settir eru fram skilmálar um framkvæmd, útfærslu, aðkomu og frágang. Með skipulaginu er leitast við að lágmarka rask á landi og tryggja að uppbygging taki mið að verndargildi svæðisins.
Innviðanefnd lagði til á 17. fundi að skipulagsfulltrúa verði falið að kynna skipulagstilögurnar og vísaði erindinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Bæjarstjórn samþykkir erindið samhljóða og felur skipulagsfulltrúa að kynna skipulagstillögurnar.4. Barnaverndarþjónusta - Samningur við leiðandi sveitarfélag
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og launafulltrúi.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Hjálmar og Gunnar Már.
Samningur milli Reykjanesbæjar og Grindavíkurbæjar um barnaverndarþjónustu lagður fram til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða og felur bæjarstjóra að undirrita hann.5. Samþykkt um breytingu á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar nr. 530-2022
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og launafulltrúi.
Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már, Hjálmar, Inga Fanney og Hallfríður.
Breytingar á samþykkt sveitarfélagsins um stjórn og fundarsköp lögð fyrir bæjarstjórn til annarrar umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.6. Starfsemi á frístunda- og menningarsviði haustið 2026
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og launafulltrúi.
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Gunnar Már, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Hjálmar, Birgitta Hrund, Birgitta Rán, Inga Fanney, launafulltrúi og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Lagt fram minnisblað vegna starfsemi á frístunda- og menningarsviði, dags. 8. maí 2026.
Fundarhlé tekið kl. 15:25 - 15:40.
Bæjarstjórn felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram í samræmi við fjárhagsáætlun og opnun leik- og grunnskóla næsta haust.7. Reglur um frístundastyrki
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og launafulltrúi.
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Drög að reglum um frístundastyrki lögð fram. Bæjarráð hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti.
Bæjarstjórn samþykkir reglurnar samhljóða.8. Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Lögð fram umsögn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, dags 24. apríl 2026 um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimildir), 529. mál.9. Bæjarráð Grindavíkur - 1710
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Rán, Hjálmar og Hallfríður.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.10. Samfélagsnefnd - 12
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar og Gunnar Már.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.11. Almannavarnanefnd Grindavíkur - 82
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hjálmar og Hallfríður.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.12. Fundargerðir 2026 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 17.04.2026 er lögð fram til kynningar.13. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2026
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 324. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 06.05.2026 er lögð fram til kynningar.14. Fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs 2026
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 95. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs dags. 20.04.2026 er lögð fram til kynningar.