Bæjarstjórn Grindavíkur - 556. fundur
- 20.02.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:50
- í ráðhúsi Reykjavíkurborgar
- Fundur nr. 556
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024
Guðjón Bragason sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hjálmar, Hallfríður, Gunnar Már, Guðjón, Birgitta Hrund, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Rán og Sævar.
Farið yfir stöðu mála.2. Samningur við innviðaráðuneyti - fjármál og rekstur Grindavíkurbæjar
Guðjón Bragason sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, bæjarstjóri, Hallfríður, Birgitta Rán, Gunnar Már, Hjálmar, Sævar og Birgitta Hrund.
Lögð fram drög að samningi við innviðaráðuneyti um rekstur og fjármál Grindavíkurbæjar.
Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.3. Frumvarp til laga um tímabundinn rekstrarstuðning vegna nattúruhamfara í Grindavíkurbæ
Guðjón Bragason sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Gunnar Már, Hallfríður og Hjálmar.
Lögð fram umsögn atvinnuteymis Grindavíkurbæjar um frumvarpið.
Bæjarstjórn lýsir ánægju sinni með umsögnina.4. Aflétting fyrirmæla embættis ríkislögreglustjóra um brottflutning
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Lögð fram tilkynning ríkislögreglustjóra, dags. 18. febrúar 2024 vegna afléttingar fyrirmæla embættis ríkislögreglustjóra um brottflutning skv. 24. gr. laga um almannavarnir nr. 82/20085. Fjárhagsáætlun 2024-2027 - Grindavíkurbær og stofnanir
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Birgitta Hrund og bæjarstjóri.
Lögð fram áætlun um útsvarstekjur fyrir árið 2024.6. Starfsmannastefna
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Sævar, bæjarstóri, Hjálmar og Birgitta.
Í ljósi stöðunnar samþykkir bæjarstjórn samhljóða að fella heilsustyrk út úr starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar og það taki gildi frá 1. janúar 2024.