Bæjarstjórn Grindavíkur - 591. fundur
- 16.12.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 591
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Birgitta Hrund og Birgitta Rán sátu fundinn í gegnum Teams.
1. Upplýsingagjöf varðandi öryggismál í Grindavík
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hallfríður,forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, Birgitta Hrund og Hjálmar.
Lagt fram erindi frá Örugg-verkfræðistofu varðandi upplýsingar sem bæjarbúar fá frá stjórnsýslunni varðandi öryggismál bæjarins.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram. Jafnframt óskar bæjarstjórn eftir fundi með Grindavíkurnefndinni vegna erindisins.2. Rekstrarkostnaður slökkviliðs Grindavíkur
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjonustumiðstöðvar.
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Lagt fram samkomulag um uppgjör á kostnaði vegna reksturs á slökkviliði Grindavíkur á tímabilinu apríl til október 2025.3. Rammasamningur - Niðurrif altjónshúsa í Grindavík
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjonustumiðstöðvar.
Til máls tóku: Ásrún, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, Birgitta Hrund, Hallfríður, Guðjón, bæjarstjóri og Hjálmar.
Lagður fram listi umsókna þeirra fyrirtækja sem vilja taka þátt í Rammasamningi - Niðurrif altjónshúsa í Grindavík.
Auk þess lögð fram drög að niðurrifssamningum vegna Mánagerði 2, Mánagötu 19 og Mánagötu 21.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða samninga og felur bæjarstjóra að undirrita þá.4. Fjárhagsáætlun HES fyrir árið 2026
Til máls tók: Ásrún.
Fjárhagsáætlun HES fyrir árið 2026 er lögð fram til samþykktar. Fjárhæðir hafa verið færðar inn í fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða áætlun.5. Fjárhagsáætlun SSS fyrir árið 2026
Til máls tók: Ásrún.
Fjárhagsáætlun SSS fyrir árið 2026 er lögð fram til samþykktar. Fjárhæðir hafa verið færðar inn í fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða áætlun.6. Fasteignagjöld 2026
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Tillaga að álagningarreglum fasteignagjalda fyrir árið 2026 er lögð fram til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að álagningarreglur fasteignagjalda verði óbreyttar frá fyrra ári nema fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækki úr 0,30% í 0,25%.7. Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum - Tekjuviðmið 2026
Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Tillaga að tekjuviðmiðum vegna afsláttar tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi er lögð fram til samþykktar. Lagt er til að tekjuviðmið hækki um 8% frá því sem samþykkt var fyrir árið 2024.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu.8. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið:
Til máls tók: Ásrún.
Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árin 2026-2029 er lögð fram til fyrri umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.9. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundarhlé gert kl. 15:15 - 16:45
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Hjálmar og bæjarstjóri.
Fundargerð 989. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 14.11.2025 er lögð fram til kynningar.10. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 990. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 05.12.2025 er lögð fram til kynningar.11. Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 818. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 10. desember 2025 er lögð fram til kynningar.12. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2025
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 321. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 10.12.2025 er lögð fram til kynningar.13. Fundargerðir 2025 - Kalka sorpeyðingarstöð
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 574. stjórnarfundar Kölku dags. 29.10.2025 er lögð fram til kynningar.14. Bæjarráð Grindavíkur - 1696
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.15. Bæjarráð Grindavíkur - 1697
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 92
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón, Gunnar Már og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.