Bæjarstjórn Grindavíkur - 599. fundur
- 25.08.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 14:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 599
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Guðbjörg Eyjólfsdóttir1. varaforseti
- Inga Fanney Rúnarsdóttir2. varaforseti
- Þorleifur Ólafssonaðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Ómar Davíð Ólafssonaðalmaður
- Magnús Már Jakobssonaðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Georg Markanbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Beiðni um breytingu á deiliskipulagi Víðihlíðar - lóðarbreytingar
Til máls tók: Ásrún.
Skipulagsfulltrúi leggur fram tillögu að óverulegri deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Víðihlíðar skv. 47. og 48.gr. skipulagslaga um lóðabreytingar og nafnagjöf lóða. Breytingin felur í sér leiðréttingu lóðarmarka lóðarinnar að Austurvegi 5 með landnúmer L128522 og stofnun nýrrar lóðar upp úr henni. Tillaga að heiti nýrrar lóðar er Austurvegur 7 en þar er í byggingu félagsaðstaða aldraðra.
Bæjarstjórn samþykkir breytinguna og er það mat bæjarstjórnar að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samkvæmt 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga er heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að breytingin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Það er mat bæjarstjórnar að ákvæði 3. mgr. 44. gr. eigi við í þessu tilviki og er því fallið frá grenndarkynningu.
Með samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar samþykkir bæjarstjórn umbeðnar lóðabreytingar, sbr. 47. gr. skipulagslaga, og að ný lóð fái staðfangið Austurvegur 7.
Sviðsstjóra er falið að annast gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda og skila skipulagsgögnum í Skipulagsgátt. Jafnframt er sviðsstjóra falið að útbúa og afgreiða merkjalýsingar fyrir lóðirnar og lóðaleigusamninga.2. Fyrirhugaðar framkvæmdir á lóð við Hafnargötu 14
Til máls tóku: Ásrún, Guðbjörg og Ómar Davíð.
Lagt fram minnisblað frá hafnarstjóra varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir á húsnæði Vísis við Hafnargötu 14 ásamt framkvæmdum við Seljabót og Kvíabryggju.
Bæjarstjórn samþykkir að áfram verði unnið að samræmingu fyrirhugaðrar uppbyggingar við Hafnagötu 14 við áform bæjarins um upphækkun og endurbyggingu Seljabótar, hækkun og endurbyggingu Kvíabryggju og endurnýjun fráveitukerfis á svæðinu.
Endanleg afstaða til breytinga á lóðarmörkum og útfærslu plans verði tekin þegar fyrir liggja nauðsynlegar upplýsingar um framtíðarhæð Seljabótar og Kvíabryggju, ásamt fullnægjandi útfærslu á aðgengi að fráveitulögnum og tryggt hefur verið að fyrirhuguð uppbygging takmarki ekki möguleika bæjarins til framtíðarframkvæmda og viðhalds á svæðinu.
Skipulagsfulltrúa ásamt hafnarstjóra er falið að vinna málið áfram.Fylgiskjöl
3. Upphæð frístundastyrkja 2026
Til máls tók: Ásrún.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að frístundastyrkur á árinu 2026 fyrir börn og ungmenni, 18 ára og yngri, verði kr. 55.000.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.4. Fjárhagsáætlun 2027-2030 - Grindavíkurbær og stofnanir
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram drög að verkáætlun við vinnu við fjárhagsáætlun 2027-2030.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða verkáætlunina.5. Bæjarráð Grindavíkur - 1715
Til máls tóku: Ásrún, Guðbjörg, Ómar Davíð og sviðsstsjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.6. Bæjarráð Grindavíkur - 1716
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.7. Bæjarráð Grindavíkur - 1717
Til máls tóku: Ásrún og Guðbjörg.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.8. Bæjarráð Grindavíkur - 1718
Til máls tóku: Ásrún og Guðbjörg.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.9. Fundargerðir og gögn fjallskilanefndar 2026
Til máls tók: Ásrún.
Réttardagur í Þórkötlustaðarrétt verður sunnudaginn 20. september nk. kl. 14:00.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.