Bæjarstjórn Grindavíkur - 536. fundur
- 03.01.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 536
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Grindavíkur
Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
SAMÞYKKT um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar er lögð fram til síðari umræðu.
Á 535. fundi bæjarstjórnar þann 27. desember sl. var samþykkt að vísa neðangreindum tillögum að breytingum á bæjarmálasamþykkt Grindvíkurbæjar til síðari umræðu í bæjarstjórn:
1. Tillaga að breytingu á 4. tl. undir B-lið 1. mgr. 48. gr. er svohljóðandi:
4. Félagsmálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Félagsmálanefnd fer með öldrunarmál skv. 7. gr. laga nr. 125/1999, jafnréttismál skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020, málefni fatlaðs fólks skv. lögum nr. 38/2018, húsnæðismál skv. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 og yfirstjórn barnaverndarþjónustu skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002, ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin með erindisbréfi.
2. Tillaga að nýjum tölulið (nr. 8) undir C-lið 1. mgr. 48. gr. er svohljóðandi:
8. Umdæmisráð barnaverndar. Grindavíkurbær stendur sameiginlega að umdæmisráði barnaverndar í samstarfi við önnur sveitarfélög samkvæmt samningi þar um, í samræmi við 14. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, sbr. síðari breytingar. Bæjarstjórn kýs einn fulltrúa sveitarfélagsins í valnefnd til fimm ára sem annast skipan umdæmisráðs skv. 2. gr. samningsins.
3. Tillaga að nýjum viðauka, nr. 2.1., í Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar, um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Grindavíkur.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða samþykkt og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að óska eftir staðfestingu ráðherra á samþykktinni.2. Innheimta fyrir meðhöndlun úrgangs
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Hrund, Hallfríður og Hjálmar.
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 29.12.2022 þar sem vakin er athygli á breytingum laga er snúa að sorpmálum.3. Lokanir á Grindavíkurvegi vegna ófærðar
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar, Helga Dís og Birgitta Rán.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið og svöruðu þeir fyrirspurnum.
Almennar umræður um lokanir og snjómokstur en engin gögn lögð fram.