Bæjarstjórn Grindavíkur - 534. fundur
- 13.12.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 534
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði forseti eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 10. mál: Aðalskipulagsbreyting í Reykjanesbæ Vinnslutillaga ósk um umsögn - 2211073.
Samþykkt samhljóða.
1. Kjarasamningsumboð - Samband íslenskra sveitarfélaga
Til máls tók: Ásrún.
Sveitarfélögin veita Sambandi íslenskra sveitarfélaga umboð til kjarasamninga vegna hvers og eins stéttarfélags sem starfsmenn þess eiga aðild að. Endurnýja þarf kjarasamningsumboð til samræmis við núverandi stöðu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til kjarasamningagerðar fyrir sína hönd við tilgreind stéttarfélög. Jafnframt er bæjarstjóra falið að rita undir samkomulag um kjarasamningsumboð.2. Breyting á starfsmannastefnu - Heilsuefling
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram eftirfarandi tillaga að breytingu á heilsueflingarkafla starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar:
Að árlegur hámarksstyrkur verði 40.000 kr. í stað 30.000 kr. og að 9. töluliður verði felldur á brott.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.3. Gjaldskrá fyrir byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjöld
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir byggingar-, skipulags-, og þjónustugjöld Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.4. Gjaldskrá og samþykkt fráveitu Grindavíkurbæjar
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir fráveitu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.5. Breyting á gjaldskrá um sorpgjöld og sorphirðu í Grindavík - 2022
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Grindavíkurbæ lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.6. Samþykkt um gatnagerðargjöld - tillaga að breytingu des 2022
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á samþykkt um gatnagerðargjöld í Grindavík lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.7. Reglur um lóðarúthlutanir - tillaga að breytingu des 2022
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á reglum um lóðarúthlutanir í Grindavík lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.8. Gjaldskrá vatnsveitu Grindavíkurbæjar
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir vatnsveitu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.9. Kalka sorpeyðing - Söfnun úrgangs og söfnunarílát
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri og Hjálmar.
Lagt fram erindi frá Kölku, dags. 22.11.2022 þar sem óskað er eftir samþykki bæjarins að Kalka sjái um söfnun úrgagns frá heimilum vegna fjögurra úrgangsflokka og sjái líka um fjármögnun söfnunarílátanna.
Vegna nýrra upplýsinga varðandi mögulegan fjölda af tunnum er lagt til að fresta málinu og taka það upp til umræðu á næsta fundi bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fresta málinu.10. Aðalskipulagsbreyting í Reykjanesbæ Vinnslutillaga ósk um umsögn
Til máls tók: Ásrún.
Reykjanesbær óskar umsagnar við vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar á Reykjanesi. Breytingin varða stækkun á iðnaðarsvæði i5 og aukning á byggingarmagni. Gert er ráð fyrir uppbyggingu fiskeldis á svæðinu.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi sínum þann 5.12.2022 og gerði ekki athugasemd við skipulagstillöguna og vísaði afgreiðslu málsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða bókun skipulagsnefndar.11. Fundargerðir 2022 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Hjálmar, Hallfríður og bæjarstjóri.
Fundargerð svæðisskipulags Suðurnesja nr. 29, dags. 10.03.2022 er lögð fram til kynningar.12. Fundargerðir 2022 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Til máls tóku: Ásrún og Hallfríður.
Fundargerð svæðisskipulags Suðurnesja nr. 30, dags. 07.04.2022 er lögð fram til kynningar.13. Fundargerðir 2022 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Hallfríður, bæjarstjóri og Hjálmar.
Fundargerð svæðisskipulags Suðurnesja nr. 31, dags. 06.10.2022 er lögð fram til kynningar.14. Fundargerðir 2022 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, Hjálmar og bæjarstjóri.
Fundargerð svæðisskipulags Suðurnesja nr. 32, dags. 10.11.2022 er lögð fram til kynningar.15. Bæjarráð Grindavíkur - 1630
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Skipulagsnefnd - 110
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgittta Rán, Unnar, Birgitta Hrund og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Frístunda- og menningarnefnd - 121
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Birgitta Hrund.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.