Bæjarstjórn Grindavíkur - 600. fundur
- 29.09.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 600
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Guðbjörg Eyjólfsdóttir1. varaforseti
- Inga Fanney Rúnarsdóttir2. varaforseti
- Þorleifur Ólafssonaðalmaður
- Ólöf Rún Óladóttirvaramaður
- Ómar Davíð Ólafssonaðalmaður
- Björn Steinar Brynjólfssonvaramaður
Starfsmenn
- Pétur Georg Markanbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskaði forseti eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem fyrsta mál:
2608054 Áætlun um frístundastarf fyrir börn og ungmenni í Grindavík
Samþykkt samhljóða.
1. Áætlun um frístundastarf fyrir börn og ungmenni í Grindavík
Til máls tóku: Ásrún og Guðjón.
Lögð fram minnisblöð um frístundastarf fyrir börn og ungmenni í Grindavík auk gátlista fyrir frístundastarf barna- og ungmenna ef til rýmingar kemur.
TILLAGA
Lagt er til að bæjarstjórn samþykki framangreint fyrirkomulag frístundastarfs barna og ungmenna í Grindavík með það að markmiði að tryggja fjölbreytt starf alla virka daga eftir að skóla lýkur og fram til kl. 17.
Samþykkt verði að auglýsa eftir forstöðumanni frístundastarfs barna og ungmenna í 100% starf, starfsmanni félagsmiðstöðvar í 60% starf og tveimur starfsmönnum íþróttamannvirkja í 60% starf, hvor, með það að markmiði að ráðningar taki gildi eins fljótt og mögulegt er.
Gert verði ráð fyrir fjárheimildum til búnaðarkaupa og uppbyggingar aðstöðu fyrir frístundastarf barna og ungmenna á árunum 2026 og 2027.
Þá verði sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að vinna áfram að auknu framboði frístundastarfs á árinu 2027.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs verði falið að kanna hvort hægt sé að bjóða upp á tónlistarnám fyrir börn og ungmenni í Grindavík einu sinni í viku.
Tillagan er samþykkt samhljóða.2. Orkuvinnsla í Eldvörpum - Umsókn um skipulagsbreytingar
Til máls tóku: Ásrún og Guðbjörg.
Lögð er fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2032 um jarðhitanýtingu í Eldvörpum, sem samanstendur af greinargerð, skipulagsuppdrætti og umhverfismatsskýrslu aðalskipulagsbreytingarinnar dags. í ágúst 2026. Samhliða er lögð fram tillaga að nýju deiliskipulagi jarðhitanýtingar í Eldvörpum, sem samanstendur af greinargerð, skipulagsuppdrætti og umhverfismatsskýrslu dags. í september 2026.
Jafnframt er lögð fram samantekt á því hvernig brugðist hefur verið við umsögnum og athugasemdum sem hafa borist við kynningu á vinnslutillögu skipulagsins. Tillögurnar hafa tekið breytingum í kjölfar samráðs á vinnslustigi aðalskipulagsins og deiliskipulagsins. Breytingar snúa m.a. að umfjöllun um verndarsvæði, valkosti, frekari upplýsingum um stærðir borteiga, gönguleiðir, náttúruvá og skilmálum um verklag við framkvæmdir. Jafnframt er skýrari skipulagsskilmálar fyrir framkvæmdum á borteigum.
Innviðanefnd hefur farið yfir framlagðar tillögur og telur að þær séu fullnægjandi til auglýsingar. Nefndin telur að við gerð tillögunnar hafi verið unnið í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010, skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, náttúruverndarlaga nr. 60/2013 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Innviðanefnd leggur til að ofangreind skipulagsgögn verði kynnt á sama tíma og umhverfismatsskýrsla framkvæmdanna til þess að íbúar og hagaðilar fái heildstæða kynningu á fyrirhugaðri jarðhitanýtingu, framkvæmdum og umhverfisáhrifum.
Innviðanefnd leggur það til við bæjarstjórn að samþykkt verði að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og tillögu að nýju deiliskipulagi skv. 3. mgr. 40. gr. sömu laga.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu innviðanefndar.3. Breyting á skipulagi íþróttasvæðis - ÍÞ1
Til máls tóku: Ásrún, Þorleifur, Ómar og Guðbjörg.
Til skoðunar er að útbúa áfangastað fyrir ferðamenn vestan við Íþróttahús Grindavíkurbæjar sem kallast Végarður og einnig í Hópinu við Austurveg 3c, austar á svæðinu. Báðir staðirnir eru innan ÍÞ1 á aðalskipulagi og einnig hugsanlegt að áfangstaðurinn Végarður muni ná inn á miðsvæði (M1).
Óskað er heimildar til að breyta aðalskipulagi þannig að áformin samræmist skipulagi.
Málið var tekið fyrir á fundi innviðanefndar 25.ágúst sl. þar sem samþykkt var að fara í breytingar á deiliskipulagi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða erindið.4. Ásýnd Grindavíkurbæjar
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram drög að vörumerkjahandbók Grindavíkur. Handbókin byggir á byggðarmerki Grindavíkur frá árinu 1986. Grunnhugmynd merkisins og táknfræði eru óbreytt en útfærslan hefur verið einfölduð og aðlöguð að fjölbreyttri notkun í stafrænum og prentuðum miðlum.
Bæjarstjórn samþykkir vörumerkjahandbókina samhljóða.5. Tilmæli um notkun gervigreindar hjá Grindavíkurbæ
Til máls tóku: Ásrún og Inga Fanney.
Lagðar fram tillögur að leiðbeinandi reglum um notkun gervigreindar. Bæjarráð tók reglurnar fyrir á fundi nr. 1720 þann 8.9.2026 og vísaði reglunum til bæjarstjórnar til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir reglurnar samhljóða.6. Stefna og viðbragðsáætlun Grindavíkurbæjar gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi (EKKO)
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram drög að viðbragðsáætlun Grindavíkurbæjar gegn gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi (EKKO)
Bæjarráð vísaði stefnunni til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir reglurnar samhljóða.7. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram beiðni um viðauka vegna viðhalds bifreiða og tækja hjá þjónustumiðstöð að fjárhæð 8.500.000 kr.
Lagt er til að fjármögnun verði með lækkun á eignfærðri fjárfestingu, nánar tiltekið liðnum Túngata 15-17 - lagfæringar húss vegna náttúruvár.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.8. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram beiðni um viðauka vegna viðhalds húsa og mannvirkja hjá Eignasjóði að fjárhæð 24.950.000 kr. Beiðnin felst í færslu fjárheimilda milli rekstrareininga og eignfærðrar fjárfestingar.
Lagt er til að fjármögnun verði með lækkun á nokkurum rekstrarlyklum og eignfærðri fjárfestingu skv. greinargerðinni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.9. Slökkvistöð - breytingar innanhúss
Til máls tók: Ásrún.
Óskað er eftir viðbótarheimild að fjárhæð 39.500.000 kr. á framkvæmdaáætlun Eignasjóðs vegna breytinga í slökkvistöð.
Lagt er til að fjármögnun verði með lækkun á fjárfestingaáætlun hafnarinnar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.10. Framkvæmdir við klæðningu á Ásabraut 2 (Grunnskóli Grindavíkur)
Til máls tók: Ásrún.
Óskað er eftir viðbótarfjárheimild að fjárhæð 15.000.000 kr. vegna grunnskólans á Ásabraut 2.
Lagt er til að fjármögnun verði með lækkun á verki 32-11009 stígagerð o.fl. tengt "Perlan í Grindavík".
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.11. Beiðni um viðauka - Markaðs- og kynningarmál
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram beiðni um viðauka vegna kynningar og markaðssetningar að fjárhæð 13.000.000 kr. á lykilinn 21581-4342. Lagt er til að fjármögnun verði með styrk vegna kynningarmála að fjárhæð 7.000.000 kr. á lykilinn 21581-0990 og hækkun á áætlun staðgreiðslu um 6.000.000 kr. lykill 00010-0021.
Bæjaráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.12. Stoðþjónusta - Beiðni um viðauka
Til máls tóku: Ásrún, Guðbjörg Ómar Davíð og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Lögð fram viðaukabeiðni sem fari á eftirfarandi liði í fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð kr. 1.365.000. Viðaukinn yrði færður undir 02522-1110 kr. 1.092.000 og 02522-1890 kr. 273.000. Fjármögnun verði með hækkun á áætlun staðgreiðslu kr. 1.365.000 á lykil 00010-0021.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir 6 samhljóða atkvæðum tillögu bæjarráðs.13. Samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Grindavíkurbæ
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðbjörg, bæjarstjóri, Inga Fanney og Ómar.
Lögð fram samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa. Um er að ræða smávægilegar breytingar á samþykktinni.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samþykktina með þessum breytingum.14. Umsagnarbeiðni - Gistileyfi Brautarholt
Til máls tók: Ásrún.
Fjórhjólaævintýri ehf. sækir um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II, C, minna gistiheimili, Brautarholt Volcanic escape í Brautarholti í Þórkötlustaðahverfi.
Bæjarstjórn samþykkir veitingu leyfisins og felur bæjarstjóra að senda inn umsögn að fenginni umsögn byggingafulltrúa og slökkviliðsstjóra.15. Fundargerðir 2026 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð frá 826. fundi stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 9. september 2026 er lögð fram til kynningar.16. Fundargerðir 2026 -Kalka sorpeyðingarstöð
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 48. aðalfundar Kölku dags. 20.08.2026 er lögð fram til kynningar.17. Fundargerðir 2026 -Kalka sorpeyðingarstöð
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 581. stjórnarfundar Kölku dags. 01.09.2026 er lögð fram til kynningar.18. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2026
Til máls tók: Ásrún, bæjarstjóri, Ómar Davíð, Inga Fanney og Guðjón.
Fundargerð 326. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 18.08.2026 er lögð fram til kynningar.19. Fundargerðir 2026 - Samtök orkusveitarfélaga
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 93. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga, dags. 27. apríl 2026 er lögð fram til kynningar.20. Fundargerðir 2026 - Samtök orkusveitarfélaga
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 94. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga, dags. 18. júní 2026 er lögð fram til kynningar.21. Fundargerðir 2026 - Samtök orkusveitarfélaga
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 95. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga, dags. 07. ágúst 2026 er lögð fram til kynningar.22. Fundargerðir 2026 - Samtök orkusveitarfélaga
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 96. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga, dags. 21. ágúst 2026 er lögð fram til kynningar.23. Bæjarráð Grindavíkur - 1719
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.24. Bæjarráð Grindavíkur - 1720
Til máls tóku: Ásrún, Guðbjörg, Guðjón, Ómar Davíð og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.25. Bæjarráð Grindavíkur - 1721
Til máls tóku: Ásrún, Guðbjörg, bæjarstjóri og Guðjón.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.26. Bæjarráð Grindavíkur - 1722
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.27. Samfélagsnefnd - 15
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.28. Almannavarnanefnd Grindavíkur - 84
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.29. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 98
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.