Bæjarráð Grindavíkur - 1696. fundur
- 02.12.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1696
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Mögulegt samstarf við Reykjanesbæ um hlutverk sem leiðandi sveitarfélag
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs. Frá FUMG: Árni Þór Sigurðsson (Teams) og Jóhanna Lilja Birgisdóttir (Teams).
Lögð fram drög að bréfi til Reykjanesbæjar um mögulegar viðræður um leiðandi sveitarfélag í félagsþjónustu og fræðslumálum.
Bæjarstjóra er heimilað að undirrita bréfið með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.2. Rekstur þjónustuúrræða í þágu fatlaðs fólks
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Minnisblað unnið af Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Sv. Vogum vegna uppgjörs á samningi um sameiginleg úrræði í þágu fatlaðs fólks er lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að ganga til samninga í samræmi við umræður á fundinum.3. Undanþága frá skipulagslögum vegna ráðningar skipulagsfulltrúa, framhald
Veitt hefur verið áframhaldandi undanþága frá 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til að skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar fái áfram að gegna stöðunni. Undanþágan gildir til 27. maí 2026.
4. Ný vefsíða Grindavíkurbæjar
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lögð fram drög að veftré og stílbók fyrir miðla Grindavíkurbæjar. Farið yfir stöðuna á nýrri vefsíðu Grindavíkurbæjar.5. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.