Bæjarráð Grindavíkur - 1673. fundur
- 07.01.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 -
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1673
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaraformaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Sævar Þór Birgisson sat fundinn í Teams.
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að setja mál á dagskrá með afbrigðum sem 6. mál:
2501007 Barnaverndarþjónsta, Samvinna
Samþykkt samhljóða.
1. Starfsemi Slökkviliðs Grindavíkur
Farið yfir samskipti Grindavíkurbæjar við almannavarnir og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun varðandi kostnað, rekstur og viðbragð slökkviliðs Grindavíkur.
Málið er enn í vinnslu.2. Almannavarnanefndir á Suðurnesjum
Bæjarráð leggur til að fá bæjarstjóra Reykjnesbæjar og lögreglustjórann á Suðurnesjum til fundar um framhald málsins og felur bæjarstjóra að boða fundinn.
3. Ósk um aðstöðu til listsköpunar
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar.
Lögð fram fyrirspurn um breytingar á Gerðavöllum 17.
Bæjarráð heimilar breytingarnar, en leggur áherslu á að húsnæðinu verði skilað í fyrra horfi og felur forstöðumanni þjónustumiðstöðvar að hafa eftirlit með framkvæmdum.4. Útleiga húsnæðis í eigu Grindavíkurbæjar
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð frestar málinu og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að afla frekari gagna.5. Varðveisla minja og aðgengi ferðamanna - Rammaskipulag
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Skarphéðinn Berg Steinarsson, ráðgjafi (Teams) og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð tekur vel í þær hugmyndir sem kynntar voru á fundinum og leggur til við bæjarstjórn að gera ráð fyrir, í fjárhagsáætlun 2025, aðstöðusköpun til að taka á móti ferðamönnum á næstu misserum.6. Barnaverndarþjónusta Samvinna
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs (Teams)
Bæjarráð Grindavíkur óskar eftir því við bæjarráð Suðurnesjabæjar að sveitarfélögin hefji viðræður um samvinnu um barnaverndarþjónustu í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga.7. Forkaupsréttur vegna sölu á fiskiskipinu Sturlu GK-12, sknr. 2444
Útgerðarfélagið Ganti ehf. hefur gert kaupsamning um skipið ásamt veiðarfærum og aflahlutdeildum í fisktegundum sem gáfu samtals 25,2 tonna þorskígilda aflamark. Grindavíkurbæ er boðinn forkaupsréttur, sbr, 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.
Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti.8. Öryggsbrestur - Tilkynning til persónuverndar
Lagður fram tölvupóstur frá hýsingaraðila tölvukerfa Grindavíkurbæjar vegna netárásar.
Grindavíkurbær hefur tilkynnt öryggisbrestinn til Persónuverndar og er málið í rannsókn. Gögn Grindavíkurbæjar virðast hafa sloppið við árásina.