Bæjarráð Grindavíkur - 1627. fundur
- 08.11.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 19:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1627
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Skólar ehf - Yfirferð rekstrar og efnahags
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Guðmundur Pétursson stjórnarformaður mætti á fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann framtíðarsýn Skóla ehf.2. Slökkvilið Grindavíkur - Beiðni um viðauka
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og launafulltrúi sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka á launaliði hjá slökkviliði Grindavíkur vegna ársins 2022 að fjárhæð 7.475.000 kr. og lagt til að hann verði fjármagnaður með lækkun á liðnum 21611-1119.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.3. Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - Kvikan
Sótt er um tímabundið áfengisleyfi vegna fyrirhugaðs dansleik í Kvikunni þann 25.11.2022.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.4. Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - Gjáin
Sótt er um tækifærisleyfi vegna fyrirhugaðs Herrakvölds á vegum körfuknattleiksdeildar Grindavíkur þann 18.11.2022 í Gjánni.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.5. Ósk um styrk á móti greiðslu fasteignagjalda
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minja- og sögufélag Grindavíkur eignaðist nýlega fasteignina Kreppu og óskar eftir styrk á móti greiðslu fasteignagjalda.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að veita félaginu styrk á móti greiðslu fasteignagjalda á árinu 2023 með þeim fyrirvara að unnið verði að uppbyggingu hússins á því ári í samræmi við framlögð gögn.
Bæjarráð samþykkir að veita félaginu styrk á móti fasteignagjöldum á árinu 2023 með sama fyrirvara og hjá frístunda- og menningarnefnd.6. Gjaldskrá slökkviliðs Grindavíkur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram uppfærð þjónustugjaldská Slökkviliðs Grindavíkur fyrir árið 2023.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.7. Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum - Tekjuviðmið 2023
Bæjqrráð leggur til að tekjuviðmið hækki um 8% fyrir árið 2023 og vísar því til bæjarstjórnar til samþykktar.
8. Endurskoðun á skipuriti Grindavíkurbæjar
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Káradóttir, Birgitta R. Friðfinnsdóttir og Gunnar M. Gunnarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Einnig komu inn á fundinn sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, kl. 16:15 - 16:55.
Stjórnsýsluhópur vinnur málið áfram og sendir tillögur til KPMG.9. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Káradóttir, Birgitta R. Friðfinnsdóttir og Gunnar M. Gunnarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kom inn á fundinn undir rekstri málaflokka 02 og 04.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kom inn á fundinn undir umræðum um fjárfestingar.