Bæjarráð Grindavíkur - 1698. fundur
- 06.01.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:45 - 15:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1698
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Inga Fanney Rúnarsdóttir sat fundinn í Teams.
1. Upplýsingar um dvöl barna í Grindavík
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt fram bréf frá Grindavíkurnefndinni, dags. 23. desember 2025 þar sem óskað er upplýsinga um hvað Grindavíkurbær hefur gert og mun gera til að tryggja öryggi barna í bænum. Jafnframt lagt fram minnisblað frá bæjarstjóra til bæjarráðs vegna málsins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.2. Sviðsábyrgðarregla og mótvægisaðgerðir
Lagt fram bréf frá dómsmálaráðuneyti, dags. 17. desember 2025.
3. Frumvarp vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026
Í samráðsgátt stjórnvalda er nú frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við efni frumvarpsins.4. Ráðgjöf við almannatengsl
Lagt fram tilboð frá Fjalari Sigurðarsyni að fjárhæð 640.000 kr. á mánuði vegna ráðgjafar við almannatengsl.
Bæjarráð samþykkir samning út núverandi kjörtímabil.5. Heilsa og líðan Grindvíkinga
Lagt fram minnisblað frá Embætti landlæknis, dags. 4. desember 2025, um heilsu og líðan Grindvíkinga.