Bæjarráð Grindavíkur - 1626. fundur
- 01.11.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 18:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1626
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Bílastæði, aðgengi og umferðaröryggismál við Hópsskóla
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskárlið.
Tillögur að aðkomu að Hópsskóla lagðar fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.2. Bílastæði við Krók
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskárlið.
Lagt fram erindi frá húsfélaginu við Stamphólsveg 3, dags. 5. október sl. varðandi bifreiðar foreldrar barna á leikskólanum Króki sem lagt er á bílastæði blokkarinnar.
Bæjarráð beinir því til foreldra leikskólabarna á Króki að leggja ekki í einkastæði við Stamphólsveg 3.
Jafnframt að húsfélagið við Stamphólsveg 3 merki sín stæði sérstaklega.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að svara erindinu.3. Undirskriftalisti vegna opnunartíma sundlaugar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og forstöðumanni íþróttamannvirkja að móta tilllögur um breyttan opnunartíma sundlaugarinnar.4. Ósk um endurbætur á klefum og styktaraðstöðu í íþróttamannvirkjum
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málinu vísað í vinnu við fjárhagsáætlun vegna ársins 2023.5. Þjónustugjaldskrá á frístunda- og menningarsviði 2023
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram tillaga að þjónustugjaldskrá sviðsins.6. Umdæmisráð barnaverndar - Samningur
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs, dags. 1. nóvember 2022 varðandi rekstur umdæmisráðs hjá landsbyggðinni.
Lagt er til að Grindavíkurbær gangi til samstarfs við Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Voga um rekstur umdæmisráðs í samstarfi við SSS.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.7. Víkurbraut 58 - Leyfisveitingar
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram erindi frá frá Vinnumálastofnun dags 20. okt. sl.
Með erindinu vill stofnunin upplýsa um fyrirhugaða leigu á húsnæði fyrir alþjóðlega vernd sem og að kanna hvort sveitarfélagið myndi vilja gera þjónustusamning er snýr að félagslegri þjónustu og stuðningi við umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Bæjarráð gerir athugasemdir við það að Vinnumálastofnun leigi húsnæði í sveitarfélaginu til mótttöku flóttafólks án samráðs við bæjaryfirvöld.
Að mati bæjarráðs er húsnæðið óhæft til móttöku flóttafólks og því óskar bæjarráð eftir fundi með Vinnumálastofnun.8. Erindi til nefndasviðs Alþingis
Lagt fram erindi frá Grindavíkurbæ til fjárlaganefndar, dags. 27. okt. sl. vegna beiðni um stuðning við gestastofu og samfélagsmiðstöð í Kvikunni.
9. Breyting á gildandi rekstrarleyfi veitingastaðar - Fishhouse ehf.
Lögð fram beiðni um umsögn vegna breytinga á rekstarleyfi Fishhouse ehf.
Fyrir liggja jákvæðar umsagnir HES, byggingafulltrúa og slökkviliðs.
Bæjarráð mælir með samþykkt leyfisins.10. Fjáreigendafélag - Ósk um styrk
Lögð fram beiðni um styrk frá Fjáreigendafélagi Grindavíkur, dags. 20. okt. sl. til áburðarkaupa til að græða upp gróðursnauð svæði í beitarhólfi í Krísuvíkurlandi.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 50.000 á árinu 2023 og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að uppfæra áætlunina til samræmis.11. Endurskoðun á skipuriti Grindavíkurbæjar
Bæjarfulltrúarnir Birgitta Hrund Káradóttir, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir og Gunnar Már Gunnarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir stöðu málsins.12. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir
Bæjarfulltrúarnir Birgitta Hrund Káradóttir, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir og Gunnar Már Gunnarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir lækkunartillögur sviðsstjóra og stöðu áætlunarinnar.