Bæjarráð Grindavíkur - 1648. fundur
- 27.06.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1648
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Deiliskipulag miðbæjar í Grindavík
Drög að lýsingu fyrir forvali vegna miðbæjarskipulags Grindavíkurbæjar lögð fram. Þá er tillaga nefndarinnar um stærð miðbæjarins sem forvalið á að taka til lögð fram.
2. Breyting á deiliskipulagi Bláa Lónsins í Grindavik
Tillaga að breytingu á deiliskipulags í kringum Bláa Lónið í Svartsengi lögð fram.
Í Aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2032 er gert ráð fyrir reit fyrir verslun og þjónustustofnanir á landsvæði því sem deiliskipulagið nær til. Deiliskipulagið tekur mið af gildandi aðalskipulagi.
Eftirfarandi breytingar eru lagðar til í skipulagstillögunni á skilmálum gildandi deiliskipulags fyrir svæðið.
- Lóðir við Norðurljósaveg 9 og 11 eru sameinaðar í eina lóð Norðurljósaveg 9. Samanlagt byggingarmagn á lóðunum tveimur er óbreytt frá gildandi skipulagi, 19.700 m2.
- Lóð undir þjónustuhús, Norðurljósavegur 9a, við aðkomu að Heilsulind Bláa Lónsins, er stækkuð ásamt því að byggingarreitur fyrir þjónustuhús á lóðinni er stækkaður.
- Lóð við Norðurljósaveg 7 stækkar ásamt því að byggingareitur er stækkaður. Bílastæði breytast og aðkomuvegir færast lítilega til.
- Aðkoma sunnan við Retreat Hótel við Norðurljósaveg 9 er tekin út
Skipulagsnefnd telur að allar megin forsendur deiliskipulagsins liggi fyrir í aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 og því ekki þörf á málsmeðferð skv. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd vill þó beina því til umsækjanda að í kjölfar deiliskipulagsbreytingar þessara verði mótuð skýrari stefna um svæðið m.t.t. fjölda gistirýma, byggingarmagns o.s.frv.
Skipulagsnefnd samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að auglýsa skipulagstillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á fundi nefndarinnar nr. 122 þann 19. júlí 2023.
Bæjarráð samþykkir bókun skipulagsnefndar.
3. Hópsvegur 1 - breyting á deiliskipulagi
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.
4. Samþykkt um sorphirðu
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Grindavíkurbæ lögð fram til annarrar umræðu.
Bæjaráð samþykkir samhljóða samþykktina með fyrirvara um jákvæða umsögn Heilbrigðisnefndar Suðurnesja.5. Land ríkissjóðs í Mölvík í Grindavík
Fjármála- og efnahagsráðuneytið óskaði eftir því að VSÓ Ráðgjöf legði fram verðmat á 52 ha landsvæði í Mölvík. Verðmatið er lagt fram.
6. Sameiginlegt erindi HSS og Grindavíkurbæjar til heilbrigðisráðherra
Óskað hefur verið eftir áframhaldandi viðræðum við ríkisvaldið um að gengið verði til samninga vegna málefna heilsugæslunnar í Grindavík. Um er að ræða kaup Grindavíkurbæjar á núverandi húsnæði heilsugæslunnar og leigu ríkisins á efri hæð nýbyggingar sem nú rís við Víðihlíð.
7. Umhverfisstofnun - Samningur um refaveiðar
Lagt fram erindi frá Umhverfisstofnun ásamt samningi um refaveiðar sem og áætlun stofnunarinnar um refaveiðar fyrir árin 2023-2025.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skrifa undir samninginn.8. Ný vefsíða
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Uppfærð kröfulýsing fyrir nýjan vef Grindavíkurbæjar og undirstofnanir lögð fram.
Bæjarráð samþykkir kröfulýsinguna og felur upplýsinga- og markaðsfulltrúa að vinna málið áfram.9. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 929. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 9. júní 2023 er lögð fram til kynningar.
10. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 930. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 15. júní 2023 er lögð fram til kynningar.
11. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 921. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 30. mars 2023 er lögð fram til kynningar.
12. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 922. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 31. mars 2023 er lögð fram til kynningar.
13. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 923. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 5. apríl 2023 er lögð fram til kynningar.
14. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 924. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 17. apríl 2023 er lögð fram til kynningar.
15. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 925. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 28. apríl 2023 er lögð fram til kynningar.
16. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 926. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 17. maí 2023 er lögð fram til kynningar.
17. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 927. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 26. maí 2023 er lögð fram til kynningar.
18. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 928. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 2. júní 2023 er lögð fram til kynningar.
19. Fundargerðir - Kalka sorpeyðingarstöð 2023
Fundargerð 546. stjórnarfundar Kölku, dags. 11. apríl 2023 er lögð fram til kynningar.
20. Fundargerðir - Kalka sorpeyðingarstöð 2023
Fundargerð 547. stjórnarfundar Kölku, dags. 10. maí 2023 er lögð fram til kynningar.
21. Fundargerðir - Kalka sorpeyðingarstöð 2023
Fundargerð 548. stjórnarfundar Kölku, dags. 13. júní 2023 er lögð fram til kynningar.
22. Fundargerðir 2023 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 39. stjórnarfundar Svæðisskipulag Suðurnesja, dags. 8. júní 2023 er lögð fram til kynningar.
23. Fundargerðir 2023 - Reykjanesfólkvangur
Fundargerð 546. stjórnarfundar Reykjanesfólkvangs dags. 24. apríl 2023 er lögð fram til kynningar.
24. Fundargerðir 2023 - Reykjanesfólkvangur
Fundargerð 546. fundar Reykjanesfólkvangs dags. 23. maí 2023 er lögð fram til kynningar.
25. Skipulagsnefnd - 122
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
26. 50 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar - 2
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
27. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 74
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.