Bæjarráð Grindavíkur - 1532. fundur
- 19.11.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1532
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Kostnaðarframlag vegna aðalskipulags Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að óska eftir hærra framlagi frá Skipulagsstofnun vegna meiri vinnu við aðalskipulag sem nú er í gangi.2. Kaldavatnsstofn Grindvíkurbæjar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og gerði hann grein fyrir málinu.
3. Verkefnastjóri Kvikunnar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Listi yfir 12 umsækjendur um starf verkefnastjóra framtíðarþróunar Kvikunnar lagður fram.4. Stefnumótun fyrir Kvikuna
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram 90 daga aðgerðaráætlun og forgangsröðun verkefna fyrir Kvikuna.5. Fjölþætt heilsuefling 65 í Grindavík - Heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann stöðu málsins.
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Janus - heilsueflingu um heilsueflingar- og rannsóknarverkefnið Fjölþætt heilsuefling 65 ára og eldri í Grindavík - Heilsuefling fyrir eldri aldurshópa.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að vinna málið áfram.6. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann stöðu málsins.
Lögð fram drög að samningi við UMFG.
Bæjarráð vísar samningnum til samþykktar í bæjarstjórn.7. Fyrirspurn um kaup á bátasafni
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsvið sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram fyrirspurn um áhuga á kaupum á bátasafni. Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að afþakka tilboðið þar sem safnið hefur ekki beina tengingu við Grindavík.
Bæjarráð tekur undir með frístunda- og menningarnefnd og afþakkar tilboðið þar sem Grindavíkurbær hefur ekki aðstöðu til að geyma safnið.8. Eldhugar syngja í Eldborg - Styrkbeiðni
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsvið sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesjum, óskar eftir styrk vegna tónleika sem fram fara í Hörpu 1. desember nk.
Bæjarráð samþykkir að styrkja kórinn um 50.000 kr.9. Landakaup - Iðnaðarsvæði i5
Fyrir liggur tillaga að afsali um kaup Grindavíkurbæjar á tæplega 54 ha landi sem bærinn á rétt á að kaupa. Greiðsla fyrir landið mun eiga sér stað á árinu 2019.
Bæjarráð vísar afsalinu til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að fjárhæð 110.000.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Jafnframt felur bæjarráð sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að fella út úr fjárhagsáætlun 2020 kr. 120.000.000 sem ætluð voru til kaupa á umræddu landi.10. Fjárhagsáætlun 2020-2023 - Grindavíkurbær og stofnanir
Slökkviliðsstjóri kom inn á fundinn við umræður um slökkvilið.
Bæjarráð vísar áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn með þeim breytingum sem lagðar voru til á fundinum.11. Rekstraryfirlit janúar - september 2019
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar - september 2019.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir helstu frávik rekstrar frá fjárhagsáætlun 2019 fyrir tímabilið janúar - september 2019.12. Sveitarfélögin og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Boðað er til tengifundar samstarfsnefndar sveitarfélaga um loftslagsmál og heimsmarkmiðin. Grindavíkurbær getur tilnefnt tvo tengiliði við verkefnið.
Bæjarráð tilnefnir Kristínu Maríu Birgisdóttur, upplýsinga- og markaðsfulltrúa
og Helgu Dís Jakobsdóttur, bæjarfulltrúa.