Bæjarráð Grindavíkur - 1563. fundur
- 10.11.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:35
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1563
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Fráveita Grindavíkurbæjar - hönnun og staðarval
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hönnuðir frá Eflu kynntu málið í gegnum Teams. Einnig voru byggingafulltrúi og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar í fjarsambandi í gegnum Teams.
Forhönnun á fráveitukerfi Grindavíkurbæjar lögð fram ásamt tillögu að áfangaskiptingu til næstu 10 ára.
Bæjarráð samþykkir áfangaskiptinguna.2. Gatnalýsing Þjónustusamningur 2020
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að útboðslýsingu vegna viðhalds gatnalýsingar.
Lagt er til að fara í opið útboð vegna viðhalds og ledvæðingar gatnalýsingar til fjögurra ára.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.3. Innkomuvöktun við Grindavík
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram.4. Stígur frá Grindavík vestur að golfvelli
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram opnunarfundargerð, dags 7. nóv. sl., vegna útboðs á göngustíg frá Grindavík að Húsatóftarvelli.
8 aðilar lögðu fram tilboð. Jón og Margeir ehf. eru með lægsta tilboðið, 60,8% af kostnaðaráætlun.5. Frágangur á lóð í kringum íþróttahús-hreystigarður
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram. Óskað er eftir viðauka á eignfærða fjárfestingu ársins 2020 vegna hreystigarðs á lóð íþróttamiðstöðvar að fjárhæð 21.989.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á verkefninu 32-115110 Gatnagerð í Hlíðarhverfi.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.6. Leikskólahúsnæði; Aukning/stækkun
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Staðan á hönnun á nýjum leikskóla í Hlíðarhverfi kynnt.7. Reglur um úthlutun íbúða í Víðihlíð
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að breyttum reglum Grindavíkurbæjar um úthlutun íbúða í Víðihlíð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar.8. Fjárhagsáætlun 2021-2024 - Grindavíkurbær og stofnanir
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um frest vegna skila á fjárhagsáætlun 2021-2024.
9. Ósk um viðauka á fjárhagsáætlun 2020
Lögð fram beiðni um viðauka á rekstur Grindavíkurhafnar árið 2020 að fjárhæð 1.495.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.10. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
Grindavíkurbær hefur ekki tök á að taka þátt í verkefninu að svo stöddu.
11. Baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi
Bæjarráð tekjur jákvætt í erindið og vísar því til forstöðumanns þjónustumiðstöðvar.