Bæjarráð Grindavíkur - 1583. fundur
- 08.06.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:35
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1583
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Umsókn um skólavist
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um heimild til að ljúka grunnskólanámi í grunnskóla í Reykjavík á komandi skólaári.
Bæjarráð samþykkir erindið og sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.2. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Staðan á hönnun félagsaðstöðu eldri borgara lögð fram til kynningar.3. Deiliskipulagsbreyting - Orkuvinnslusvæði á Reykjanesi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Greinargerð og skipulagsuppdráttur deiliskipulagsbreytingar á Reykjanesi lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir á fundi sínum þann 31. maí sl. að deiliskipulagstillagan verði send í auglýsingu í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 Erindinu var vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.4. Hjólreiðafélag Reykjavíkur - óskað eftir leyfi til að halda hjólreiðakeppnina Bluelagoon Challenge 2021
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hjólreiðafélag Reykjavíkur sækir um leyfi til að halda hjólreiðakeppnina Bluelagoon Challenge sem ræst verður þann 12. júní kl. 19:00 frá Hafnarfirði.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar bendir á að samkvæmt umferðarlögum nr 77/2019 ber þeim sem ætla að halda hjólreiðakeppni á vegum að fá leyfi hjá lögreglu, auk veghaldara.
Bæjarráð gerir athugasemd við það að óskað er eftir lokun á vegum vegna mótahaldins.5. Viðburður við Kleifarvatn
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Ölgerðin sækir um leyfi fyrir minniháttar viðburði við Kleifarvatn þann 12. júní kl. 14:00-16:00.
Bæjarráð samþykkir erindið að því tilskyldu að svæðinu verði skilað í sama ástandi.6. Framkvæmdir við golfvöll
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hugmyndir um framkvæmdir við golfvöll lagðar fram.
Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar.7. Hundagerði - Svæði innan Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Staðan á vinnu við hundagerði í Grindavík lögð fram til kynningar.8. Hleðslustöðvar í Grindavík
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Staða málsins lögð fram til kynningar.9. Eignfærð fjárfesting jan-maí 2021
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram staða á fjárfestingaráætlun 2021 eftir fyrstu fimm mánuði ársins.10. Stígur frá Grindavík vestur að golfvelli
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Framkvæmdum við göngu- og hjólastíg frá Bótinni að golfvelli er lokið. Lokaskýrsla lögð fram.11. Landakaup - Vindheimar í Grindavík
Lögð fram drög að kaupsamingi og afsali.
Bæjarráð samþykkir kaupin og felur bæjarstjóra undirritun.12. Gjaldfrjálsar tíðavörur í grunnskólanum
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur sviðssstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.13. Uppfærsla á fjárhagsbókhaldi
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2021 að fjárhæð 1.900.000 kr. vegna uppfærslu á fjárhagskerfum.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.14. Launaþróun sveitarfélaga
Minnisblað sviðsstjóra kjarasviðs Samband íslenskra sveitarfélaga um launaþróun sveitarfélaga er lagt fram til kynningar.
15. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2021
Fundargerð 898. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags 28. maí 2021, er lögð fram til kynningar.
16. Skipulagsnefnd - 86
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
17. Skipulagsnefnd - 87
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
18. Fræðslunefnd - 110
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
19. Hafnarstjórn Grindavíkur - 477
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.