Bæjarráð Grindavíkur - 1506. fundur
- 05.02.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1506
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Gallup - Þjónustukönnun 2018
Málinu er frestað til næsta fundar.
2. VMST: Húsnæðisbætur
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er til breyting á reglum Grindavíkurbæjar um sérstakan húsnæðisstuðning. Inn komi ný grein, þ.e. 4. gr. a. svohljóðandi:
Ný grein kemur inn í reglurnar og verður 4. gr. a
Við sérstakar aðstæður, s.s. þegar framfærslubyrði heimilis er verulega þung eða hlutfall leigufjárhæðar af tekjum heimilis er hátt, er heimilt að veita aukinn húsnæðisstuðning umfram þau viðmið sem getið er um hér að framan. Þegar þessari heimild er beitt skal að jafnaði við það miðað að húsnæðiskostnaður að frádregnum húsnæðisbótum sé ekki lægri en 25% af heildartekjum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna.3. Markaðsgreining
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi bæjarins sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tilboð í kostnaðar- og verkáætlun varðandi markaðsgreiningu og markaðslega stefnumótun fyrir Grindavíkurbæ.
Bæjarráð vísar málinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.4. Undirbúningur að opnun bókhalds Grindavíkurbæjar
Helga Dís Jakobsdóttir bæjarfulltrúi leggur málið fyrir fundinn.
Bæjarráð felur sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að kanna frekari útfærslu á bókhaldsupplýsingum á heimasíðuna.5. Leiguverð á íbúðum í Víðihlíð
Hallfríður Hólmgrímsdóttir bæjarfulltrúi leggur málið fyrir fundinn.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.6. Beiðni um flutning milli fjárhagsára
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að fjárhæð 475.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.