Bæjarráð Grindavíkur - 1576. fundur
- 23.03.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1576
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Ný brunavarnaáætlun fyrir slökkvilið Grindavíkur
Lögð fram ný brunavarnaáætlun fyrir slökkvilið Grindavíkur 2021-2025. Áætlunin hefur þegar verið samþykkt af húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Elísabet Pálmadóttir frá Inspectionem-skoðunarstofu vann áætlunina fyrir Grindavíkurbæ og var hún gestur fundarins í gegnum Teams.2. Sumarstörf 2021
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað vegna sumarstarfa 2021 lagt fram. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram.3. Endurskoðuð jafnréttisáætlun 2020
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um jafnréttis- og aðgerðaráætlun UMFG.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarnefnd að vinna úttekt á jafnréttismálum í íþrótta- og æskulýðsstarfi innan sveitarfélagsins á árinu 2021.4. Neyðarheimili fyrir börn
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga um aðgang að neyðarheimili í barnaverndarmálum.5. Heimsendur matur - Bakkar
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð hafnar erindinu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að hækka verð á heimsendum mat úr Víðihlíð í 1.340 kr.6. Víkurbraut 62, 3 hæð - Starfsaðstæður
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2021 á rekstrareininguna 04011 Skólaskrifstofa kr. 2.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.7. Bensínverð á Suðurnesjum
Lagt fram.
8. Jarðskjálftar og landris við Grindavík
Farið yfir stöðu mála.
Bókun
Í ljósi ófremdarástands sem skapast hefur vegna umferðar akandi og gangandi vegfarenda við gossvæðið mun bæjarráð leggja fram yfirlýsingu varðandi aðgengi að gossvæðinu og ferðir til og frá Grindavík að stikuðum göngustíg frá Suðurstrandarvegi í síðasta lagi miðvikudaginn 24. mars 2021.