Bæjarráð Grindavíkur - 1527. fundur
- 01.10.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 20:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1527
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Sigurður Óli stýrði fundi í fjarveru formanns.
1. Leikskólahúsnæði; Aukning/stækkun
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Teikningar af nýjum leikskóla norðan Hópsbrautar lagðar fram til kynningar.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að halda áfram með málið.2. Öldungaráð - Nýjar samþykktir
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessu máli.
Ný drög að samþykktum fyrir öldungaráð Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bókun
Miðflokkurinn leggur til eftirfarandi breytingar á samþykktum fyrir öldungaráð Grindavíkurbæjar:
Í stað 5 mgr. 4.gr
„Bæjarstjórn kýs formann öldungaráðs en ráðið kýs varaformann, ritara og skiptir að öðru leyti með sér verkum“
Þar verði bætt við og setningin verði svohljóðandi:
Bæjarstjórn kýs formann öldungaráðs en ráðið kýs varaformann, ritara og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Formaðurinn sem kosinn er hverju sinni skal hafa náð 65 ára aldri.
Greinargerð
Með þessu vill Miðflokkurinn árétta stöðu hagaðila í ráðinu þ.e. með því að formaður ráðsins sé í hópi eldri borgara.
Fulltrúi M-lista.
Bæjarráð vísar samþykktunum til samþykktar í bæjarstjórn.3. Skólabílar Rekstarstaða sept 2019
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og umsjónarmaður fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka á árið 2019 vegna skólabifreiða að fjárhæð 1.575.000 sem skiptist á 4 rekstrarliði. Greinargerð umsjónarmanns fasteigna lögð fram til rökstuðnings.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 1.575.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.4. Snjómokstur Rekstarstaða Sept 2019
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og umsjónarmaður fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka á árið 2019 vegna snjómoksturs að fjárhæð 5.250.000 kr. sem skiptist á 4 rekstrarliði. Greinargerð umsjónarmanns fasteigna lögð fram til rökstuðnings.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 5.250.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé að fjárhæð 2.650.000 kr og hækkun tekna þjónustumiðstöðvar að fjárhæð 2.600.000 kr.5. Snjómokstur og hálkueyðing Samningur 2019-2021
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og umsjónarmaður fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að samningum við verktaka vegna snjómokstur lögð fram.6. Snjómokstur, hirðing og viðhald akbrauta á raðhúsalóðum
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og umsjónarmaður fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað um viðhald og snjómokstur á raðhúsagötum innan lóðar lagt fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.7. Gatnalýsing Rekstur Sept 2019
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og umsjónarmaður fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram skýrsla um rekstur gatnalýsingar en þar kemur fram rekstarvandi, en ástand er mun verra en menn héldu.
Lögð fram ósk um viðauka á fjárhagsáætlun 2019 á gatnalýsingu að fjárhæð 10.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á verkefninu "Gatnalýsing, endurnýjun 3. áfangi" á eignfærðri fjárfestingu að fjárhæð 8.500.000 kr. og með hækkun tekna þjónustumiðstöðvar um 1.500.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.8. Gatnalýsing Stefna Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og umsjónarmaður fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að stefnu Grindavíkurbæjar varðandi götulýsingu lögð fram.
Bæjarráð vísar stefnunni til samþykktar í bæjarstjórn.9. Gatnalýsing Útboð Lampa
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og umsjónarmaður fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram útboðsgögn vegna LED lampa fyrir gatnalýsingu. Um er að ræða 3 ára verkefni.10. Samningur við Loftmyndir ehf. 2019
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og umsjónarmaður fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að samningi við Loftmyndir ehf.
Bæjarráð vísar málinu til gerðar fjárhagsáætlunar næsta árs.11. Landakaup - Iðnaðarsvæði i5
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja samningaviðræður við landeiganda um kaup á landinu.
12. Fjárhagsáætlun 2020-2023 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lögð fram gögn forstöðumanna vegna fjárhagsáætlunar 2020-2023. Jafnfram er lagt fram málaflokkayfirlit.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjórn komi saman til vinnufundar þann 12. október nk.13. Samanburður fasteignagjalda milli sveitarfélaga
Lögð fram skýrsla Byggðastofnunar um samanburð á fasteignamati og fasteignagjöldum 2019 á 26 þéttbýlisstöðum á landinu.
Fram kemur að Grindavík er að innheimta lægstu fasteignagjöldin af þessum 26 þéttbýlisstöðum sem fram koma í skýrslunni.14. Fjölþætt heilsuefling 65+ í Grindavík - Heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Janus heilsueflingu um heilsueflingu fyrir eldri aldurshópa í Grindavík.
Bæjarráð vísar erindinu til vinnunnar við fjárhagsáætlunar næsta árs.15. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Miðflokkurinn óskar eftir að fá áheyrnarfulltrúa í fræðslunefnd.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.16. Aðalfundur fulltrúaráðs EBÍ - Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Íslands.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
17. Heilsufarsskoðun fyrir starfsmenn bæjarins
Skólastjóri Leikskólans Lautar vill kanna grundvöll fyrir því að bjóða starfsmönnum upp á slíka skoðun.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram.18. Tækifærisleyfi - Lionsklúbbur Grindavíkur
Beiðni um umsögn frá sýslumanninum á Suðurnesjum vegna umsóknar um leyfi til að halda sviðamessu í Veitingastofunni Vör 25. október nk.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.19. Umsókn um styrk
Samtök um stuðningssetur fyrir ungt fólk sækir um styrk vegna nýs úrræðis, Bergið headspace, í þágu ungs fólks.
Bæjarráð samþykkir að styrkja samtökin um 150.000 kr. á árinu 2020.20. Kvennaathvarf Styrkbeiðni
Kvennaathvarfið óskar eftir rekstrarstyrk á árinu 2019.
Bæjarráð samþykkir 50.000 kr. styrk til Kvennaathvarfsins.