Bæjarráð Grindavíkur - 1659. fundur
- 05.12.2023
- Fundargerð
- Kl. 13:30 - 17:00
- í ráðhúsi Reykjavíkurborgar
- Fundur nr. 1659
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Bæjarráð Grindavíkur sendir Kvenfélagi Grindavíkur hamingjuóskir með 100 ára afmælið sem var 24. nóvember s.l.
1. Jarðskjálftar og landris í Grindavík 2023
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og byggingafulltrúi sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir stöðu mála.2. Sprungur vegna jarðskjálfta og landriss í Grindavík 2023
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og byggingafulltrúi sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Horfa þarf á verkefnið til framtíðar, þ.e. hvaða sprungur og holur vilji er til að halda í sem áfangastað ferðamanna.3. Tjón á mannvirkjum vegna jarðskjálfta og landriss í Grindavik 2023
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, byggingafulltrúi og lögfræðingur tæknideildar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Einnig mættu á fundinn Hulda Ragnheiður Árnadóttir og Jón Örvar Bjarnason frá NTÍ og kynntu aðkomu sjóðsins að bótum vegna tjónaðra húsa.
Minnisblað frá skipulags- og umhverfissviði lagt fram.4. Metan- og vetnisframleiðsla á Reykjanesi - kynning á umhverfismatsskýrslu
Málinu er frestað.
5. Beiðni um endurskoðun á samstarfssamningi Grindavíkurbæjar við UMFG
Bæjarráð samþykkir ekki að svo stöddu þann samning sem liggur fyrir en mun skoða málið þegar líður á árið 2024.
6. Styrkbeiðni vegna áranna 2020 og 2021
Slysavarnadeildin Þórkatla óskar eftir styrk að upphæð 600.000 kr. vegna áranna 2020 og 2021.
Bæjarráð frestar málinu og óskar eftir frekari gögnum.7. Rekstraryfirlit janúar - september 2023
Rekstraryfirlit janúar til september 2023 er lagt fram.
8. Fasteignagjöld 2024
Tillaga að álagningarreglum fasteigna fyrir árið 2024 er lagt fram.
Bæjarráð vísar reglunum til bæjarstjórnar til samþykktar.9. Fjárhagsáætlun 2024-2027 - Grindavíkurbær og stofnanir
Farið yfir breytingar á rekstrarliðum 2024 frá fyrri umræðu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fresti á skilum á fjárhagsáætlun 2024-2027.