Bæjarráð Grindavíkur - 1530. fundur
- 05.11.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1530
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Stamphólsvegur 1 - umsókn um byggingarleyfi
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Ný útistofa við leikskólann Krók mun verða tekin í gagnið í byrjun árs 2020.2. Umferðaröryggisáætlun Grindavíkurbæjar
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Á fundi bæjarstjórnar þann 27. ágúst sl. var lögð fyrir áskorun skipulagsnefndar um að skipuð verði umferðaröryggisnefnd. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að taka málið upp í haust.
Bæjarráð vísar málinu áfram í endurskipulagningu í stjórnsýslunni. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að vinna umferðaröryggisáætlunina áfram.3. Framkvæmdanefnd Grindavíkurbæjar
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram.
Bæjarráð vísar málinu áfram í endurskipulagningu í stjórnsýslunni.4. Tjaldsvæði: útboðsgögn
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
5 tilboð bárust í rekstur tjaldsvæðis.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gengið verði til samninga við hæstbjóðanda, þ.e. fyrirtækið Tjald ehf. um rekstur tjaldsvæðisins.5. Leikskólahúsnæði; Aukning/stækkun
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs lagt fram.
Fundarhlé tekið kl. 18:25 - 18:356. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Minnisblað sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs lagt fram.
7. Öldungaráð - Nýjar samþykktir
Kjöri í öldungaráð er vísað til bæjarstjórnar.
8. Gjaldskrá fráveitu - breyting vegna ársins 2020
Lögð fram tillaga um að a. liður 3. gr., í Gjaldskrá fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa í Grindavíkurbæ nr. 1155/2018, verði 0,09% í stað 0,075% og að breytingin taki gildi 1. janúar 2020.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna.9. Reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna Grindavíkurbæjar
Lögð fram tillaga að breytingu reglna um sí- og endurmenntun starfsmanna Grindavíkurbæjar fyrir árið 2020, þ.a. Heildarfjárhæð verði 0,8% af launum og launatengdum gjöldum að frádreginni lífeyrisskuldbindingu. Skipting á heildarfjárhæð verði sem hér segir: A-liður var 70%, verður 80% B-liður var 20%, verður 12% C-liður var 10%, verður 8%.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna.10. Starfsmannastefna Grindavíkurbæjar
Lögð er fram tillaga að breytingu á starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar fyrir árið 2020, þ.a. heilsustyrkur verði að hámarki 30.000 kr. og að starfsaldurstengdar viðbótargreiðslur hækki um 20%.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna.11. Beiðni um styrk vegna breytinga á knattspyrnuklefum
Lögð fram beiðni frá leikmönnum meistaraflokka UMFG í knattspyrnu um styrk vegna breytinga á búningsklefum.
Bæjarráð frestar málinu og óskar eftir frekari gögnum.12. Kútter Fríða RE13 - Viljayfirlýsing
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 250.000 kr.
13. Um fjárbeiðni Stígamóta fyrir árið 2020
Lögð fram beiðni Stígamóta um styrk á árinu 2020.
Bæjarráð samþykkir að styrkja Stígamót um 50.000 kr. á árinu 2020.14. Fjáreigendafélag - Ósk um styrk
Lögð fram beiðni um styrk frá Fjáreigendafélaginu á árinu 2020.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 50.000 kr. og felur sviðsstjóra að uppfæra fjárhagsáætlun 2020 til samræmis.15. Námskeið vegna skoteldasýninga
Björgunarskóli Slysavarnafélagsins Landsbjargar óskar eftir leyfi fyrir lítilli flugeldasýningu í samstarfi við Björgunarsveitina Þorbjörn 24. nóvember nk. Sýningin tengist námskeiði í uppsetningu og framkvæmd slíkra sýninga.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur upplýsinga- og markaðsfulltrúa að gera grein fyrir málinu á heimasíðu bæjarins.