Bæjarráð Grindavíkur - 1570. fundur
- 02.02.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1570
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Ungbarnaleikskóli
Harpa Rakel og Helga Rut Hallgrímsdætur mættu á fundinn og kynntu hugmyndir sínar varðandi ungbarnaleikskóla í Grindavík.
2. Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2021
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að skipulagi vinnuskóla Grindavíkur sumarið 2021 lögð fram.3. Fjárhagsstaða deilda UMFG vegna heimsfaraldurs
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni frá Ungmennafélagi Grindavíkur þar sem óskað er eftir viðræðum við Grindavíkurbæ vegna tekjufalls hjá deildum félagsins.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram.4. Gatnalýsing: Uppfærð stefna Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram til samþykktar tillaga að breytingu á stefnu Grindavíkurbæjar varðandi gatnalýsingu.
Bæjarráð samþykkir framlagða stefnu og vísar henni til bæjarstjórnar til staðfestingar.5. Fráveita Grindavíkurbæjar - útrás 1. áfangi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lokaskýrsla verkeftirlits vegna framkvæmdar við 1. áfanga endurbóta á fráveitukerfi Grindavíkurbæjar lögð fram.6. Gatnagerð Ufsasund: Framkvæmd 2020
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lokaskýrsla verkeftirlits vegna gatnagerðar í Ufsasundi á árinu 2020 lögð fram.7. Gatnagerð Víðigerði: Framkvæmd 2020
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lokaskýrsla verkeftirlits vegna gatnagerðar í Víðigerði á árinu 2020 lögð fram.8. Tækjakaup Þjónustumiðstöð 2021
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Í fjárfestingaráætlun ársins 2021 eru samþykkt kaup á skotbómulyftara og spjótlyftu. Niðurstöður verðfyrirspurna lagðar fram og heimildar óskað til að kaupa búnaðinn í samræmi við greinargerð sem fylgir erindinu. Óskað er heimildar til að fjármagna þann hluta kaupverðs tækjanna sem er umfram heimildir fjárfestingaráætlunar með sölu á öðru tæki þjónustumiðstöðvar.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 2.164.000 kr. sem fjármagnað verði með sölu á BobCat skotbómulyftara að fjárhæð 2.000.000. og lækkun á handbæru fé að fjárhæð 164.000 kr.9. Ósk um niðurfellingu leigu 2020
Við þá ákvörðun að gefa eftir 20 prósent af leigu vegna heimsfaraldurs Covid-19 var haft að leiðarljósi að leigutaki hafði boðið í rekstur tjaldsvæðisins miðað við uppgefinn gestafjölda 2019 og árin þar á undan. Fyrir liggur að árið 2020 hafði gestakomum á tjaldsvæðið fækkað verulega. Ekki er um styrk að ræða heldur einungis niðurfellingu á hluta af leigu, eða kr. 867.955. Tjaldsvæðið er eini ferðaþjónustureksturinn sem leigður er út af hálfu Grindavíkurbæjar og því þessi ákvörðun engan veginn fordæmisgefandi fyrir önnur ferðaþjónustufyrirtæki í Grindavík.
Fulltrúar D og B-lista.10. Sjúkraflutningar í Grindavík
Bæjarráð ítrekar beiðni um að fá að sjá samning um sjúkraflutninga í Grindavík.
Bæjarráð telur ekki rétt að fara í frekari viðræður við BS án þess að sjá umræddan samning.
Bókun
Áheyrnarfulltrúi S-lista leggur til við formann bæjarráðs og bæjarstjóra að hafa samband við stjórnarformann BS til að leysa þann hnút sem kominn er upp í samskiptum þessara aðila.
Áheyrnarfulltrúi S-lista.11. Fundargerðir ungmennaráðs 2020
Fundargerðir 38. fundar þann 6. mars 2020, 39. fundar þann 30. sept. 2020 og 40. fundar þann 5. nóv. 2020 eru lagðar fram til kynningar.