Bæjarráð Grindavíkur - 1603. fundur
- 08.02.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1603
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Málsverðir í Grunnskóla Grindavíkur
Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Jón Axelsson frá Skólamat ehf var gestur fundarins í gegnum fjarfundabúnað.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í kostnaði vegna matar eldri skólabarna í janúar 2022 og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs og bæjarstjóra að vinna málið áfram.2. Leikskólagjöld vegna nemenda í sóttkví eða einangrun
Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð hafnar því að foreldrar fái niðurfellingu leikskólagjalda þá daga sem börnin eru fjarverandi vegna sóttkvíar eða einangrunar.3. Fasteignagjöld 2022
Niðurstaða álagningar fasteignagjalda fyrir árið 2022 er lögð fram.