Bæjarráð Grindavíkur - 1609. fundur
- 19.04.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 18:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1609
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
- Siggeir Fannar Ævarssonvaramaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Gestastofa Reykjanes jarðvangs
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Á fundinn mættu Hringur Hafsteinsson og Tobia Zambotti, sem var með gegnum Teams, frá hönnunarfyrirtækinu Gagarín.
Lagðar fram rýmistillögur frá Gagarín vegna gestastofu Reykjanes jarðvangs í Kvikunni.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsvis að vinna málið áfram út frá tillögu A.2. Húsnæðsaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til umfjöllunar voru húsnæðis- og starfsaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar.
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjórum bæjarfélagsins, bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að vinna málið áfram.3. Fyrirspurn um lóð við Suðurgarð
Fulltrúar Sæbýlis ehf. mættu á fundinn og kynntu starfsemi félagsins við Ægisgötu 1 og áform um stækkun m.a. vegna fyrirspurnar um lóð við Suðurgarð. Undir dagskrárliðnum sátu sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og nefndarmenn í skipulagsnefnd.
4. Samningur um mötuneyti Grunnskóla Grindavíkur
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skólamatur ehf. hefur sagt upp samningi við Grindavíkurbæ og tekur uppsögnin gildi eftir lok líðandi skólaárs.
Bæjarráð samþykkir að semja við Skólamat ehf. til allt að þriggja ára með uppsagnarákvæði og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.5. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hönnun á félagsaðstöðu eldri borgara tekin til umræðu. Vinnsluteikningar af innréttingum lagðar fram.6. Samþykkt um gatnagerðargjöld - tillaga að breytingu
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skipulagsnefnd leggur til breytingar á samþykkt um gatnagerðargjöld. Bæjarráð tekur undir fram komnar tillögur og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn.7. Reglur um lóðarúthlutannir - tillaga að breytingu
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skipulagsnefnd leggur til breytingar á reglum um lóðarúthlutanir. Bæjarráð tekur undir fram komnar tillögur og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn.8. Flutningshús til Grindavíkur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Félagið Langeldur ehf. óskar eftir samráði við Grindavíkurbæ um fyrirhugaðar framkvæmdir við flutning og endurbyggingu Hendrikshúss sem í dag er við Strandgötu 17 í Hafnarfirði.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram og leggja niðurstöðuna fyrir bæjarráð að nýju.9. Kvikmyndataka á Kleifarvatnsleið á Reykjanesi
Félagið Truenorth hefur tekið að sér kvikmyndatöku á Kleifarvatnsleið og óskar eftir að gerður verði samningur vegna verkefnisins.
Grindavíkurbær getur ekki skrifað undir samninginn sem leigusali þar sem landið er ekki í eigu bæjarfélagsins.10. Framtíð sundlaugarsvæðis
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um þróun hugmynda að framtíð sundlaugarsvæðis undanfarna tvo áratugi lagt fram ásamt bókun 114. fundar frístunda- og menningarnefndar.
Sigurður Óli leggur til að ráðist verði í frumhönnun á sundlaugarsvæði á sama tíma og unnið verður að gerð deiliskipulags íþróttasvæðis. Tilgangurinn er sá að flýta mögulegri uppbyggingu á svæðinu. Bæjarráð tekur undir tillöguna og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.11. Leiksvæði í Grindavík
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að framtíðarsýn fyrir leikvelli í Grindavík lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur áður samþykkt framtíðarsýnina fyrir sitt leyti. Bæjarráði líst vel á þær tillögur sem fram koma í skjalinu.12. Flöggun á vegum Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað um flöggun á vegum Grindavíkurbæjar lagt fram. Frístunda- og menningarnefnd telur vanta fánastangir við innkomu í bæinn auk meira áberandi fánastangar miðsvæðis sem væri "aðalfánastöng" bæjarins sem hægt væri að nýta við ýmiss konar tilefni, t.d. á 17. júní.13. Sjómannadagsblað Grindavíkur
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Borist hefur erindi frá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur þar sem þess er farið á leit að Grindavíkurbær kosti dreifingu á sjómannadagsblaðinu.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.14. Jafnlaunakönnun 2022
Niðurstaða úttektarteymis iCert, að lokinni viðhaldsúttekt, er að rekstur og viðhald jafnlaunakerfis Grindavíkurbæjar hefur gengið vel og uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess samkvæmt IST-85.