Bæjarráð Grindavíkur - 1501. fundur
- 04.12.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1501
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Knattspyrnudeild UMFG - beiðni um styrk til fasteignakaupa
Til fundarins voru mættir frá knattspyrnudeild UMFG Gunnar Már Gunnarsson og Haukur Guðberg Einarsson.
Bæjarráð óskar eftir að knattspyrnudeildin ræði við aðalstjórn UMFG um erindið.2. Fjárhagsaðstoð - Grunnur 2019
Félagsmálanefnd samþykkir breytingu á grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar, þ.e. hækkun úr kr. 135.000 í 150.000. Ekki þörf á breytingum á fjárhagsáætlun 2019 gangi tillagan eftir.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu félagsmálanefndar.3. Upplýsinga- og markaðsfulltrúi
Kristín María Birgisdóttir hefur verið ráðin upplýsinga- og markaðsfulltrúi Grindavíkurbæjar.
4. Túngata 15-17: Ósk um viðauka
Lögð fram ósk um viðauka vegna starfsemi Túngötu 15-17, að upphæð 3.280.823.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.5. Slökkvilið Grindavíkur - Samantekt og áætlun um eldvarnaeftirlit
Slökkviliðsstjóri óskar eftir 340.000 kr. viðauka við fjárhagsáætlun 2018 til að greiða fyrir aðkeypta þjónustu vegna eldvarnareftirlits sem ljúka á fyrir nk. áramót.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.6. Sjómannagarður: útikennslusvæði.
Erindið er lagt fyrir að beiðni Hallfríðar G. Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum frá sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs um notkun á útikennslusvæðinu.
Jafnframt vísar bæjarráð málinu til umfjöllunar í umhverfis- og ferðamálanefnd.7. Frágangur við Hópið - sandfok af plani
Erindið er lagt fyrir að beiðni Hallfríðar G. Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að skoða hvort hægt sé að malbika bílastæðið að hluta á árinu 2019.8. Computer Vision ehf - Myndavélakerfi
Computer Vision ehf býður myndavélakerfi sem greinir umferð bifreiða.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir kynningu á möguleikum kerfisins og kostnaði.