Bæjarráð Grindavíkur - 1726. fundur
- 03.11.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1726
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Guðbjörg Eyjólfsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Magnús Már Jakobssonaðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Georg Markanbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskar formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi tvö mál á dagskrá með afbrigðum, sem 6. og 7. mál:
2611008 Stimpilgjald vegna endurkaupa Grindavíkinga á fyrra húsnæði
og
2611009 Forgangsréttur vegna eigna Fasteignafélagsins Þórkötlu - framlenging
Samþykkt samhljóða.
1. Endurnýjun björgunarskips - Slysavarnadeildin Þorbjörn
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Fjalar Sigurðarson, ráðgjafi.
Lagt fram bréf frá Stjórn björgunarsveitarinnar Þorbjarnar þar sem óskað er eftir styrk til kaupa á nýju björgunarskipi.
Guðbjörg víkur af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð 20.000.000 kr. til kaupa á nýju björgunarskipi. Útgreiðsla styrksins verði í samráði við stjórn björgunarbátasjóðsins.2. Sterkari byggðir - þróunarverkefni 2027-2031
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Fjalar Sigurðarson, ráðgjafi.
Lögð fram drög að verkefnalýsingu á nýju verkefni sem myndi falla undir "Sterkari byggðir" hjá Byggðastofnun.
Bæjarstjóra er falið að leggja inn umsókn í samræmi við framlögð drög að verkefnalýsingu.
Jafnframt að uppfæra fjárhagsáætlun 2027.3. Aðstaða fyrir listsköpun
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Fjalar Sigurðarson, ráðgjafi.
Lögð fram beiðni um aðstöðu til listsköpunar.
Bæjarráð samþykkir að leigja Skólabraut 8 eða 10 undir þessa starfsemi.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að klára málið.4. Landsbankahúsið í Grindavík
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Fjalar Sigurðarson, ráðgjafi.
Lagt fram bréf frá Landsbankanum varðandi möguleg afnot Grindavíkurbæjar af Landsbankahúsinu í Grindavík.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.5. Fjárhólf í Krísuvík, endurnýjun samnings frá 2004
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Fjalar Sigurðarson, ráðgjafi.
Lögð fram drög að erindi til Hafnarfjarðarbæjar þar sem Grindavíkurbær leggur til að fyrirkomulag á nýtingu fjárhólfs í Krýsuvík verði með óbreyttu sniði á komandi ári.
Bæjarráð samþykkir drögin og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.6. Stimpilgjald vegna endurkaupa Grindavíkinga á fyrra húsnæði
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Fjalar Sigurðarson, ráðgjafi.
Bæjarráð leggur áherslu á að við endurkaup Grindvíkinga á húseignum í eigu Fasteignafélagsins Þórkötlu gildi sama regla um undanþágu frá lögum um stimpilgjald og greiðslu þinglýsingarkostnaðar eins og við sölu eignanna til Þórkötlu, sbr. 3. tl. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 16/2024.
Bæjarráð telur það vera augljóst réttlætismál að Grindvíkingar þurfi ekki að greiða tvisvar stimpilgjald vegna kaupa á sömu eign og mælist til þess að skýrt verði kveðið á um undanþágu í þeim lagabreytingum sem Alþingi þarf að samþykkja vegna útfærslu endurkaupaáætlunar Þórkötlu. Með þessu væri komið í veg fyrir að yfirvöld skattleggji það neyðarviðbragð að íbúar þurftu að hverfa frá eignum sínum tímabundið vegna náttúruhamfara.7. Forgangsréttur vegna eigna Fasteignafélagsins Þórkötlu - framlenging
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Fjalar Sigurðarson, ráðgjafi.
Bæjarráð minnir á að forgangsréttarákvæði laga nr. 16/2024 renna að óbreyttu úr gildi í lok febrúar 2027. Af hálfu bæjarráðs er lögð á það áhersla að gagnsæi verði tryggt um inntak forgangsréttar, verði lagaákvæðið ekki framlengt.