Bæjarráð Grindavíkur - 1657. fundur
- 24.10.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:30 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1657
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka mál á dagskrá með afbrigðum sem 1. mál: 2310093 - Rekstraráætlun Kölku sorpeyðingarstöðvar fyrir árið 2024.
Samþykkt samhljóða.
1. Rekstraráætlun Kölku sorpeyðingarstöðvar fyrir árið 2024
Forsvarsmenn Kölku, Steinþór Þórðarson og Halldór Eiríksson mættu til fundarins og gerðu grein fyrir fjárhagsáætlun Kölku fyrir árið 2024.
2. Samstarf um svæðisbundið samráð gegn ofbeldi og afbrotum
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðstjóri frístunda- og menningarsviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram samstarfslýsing um "Svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurnesjum".
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samstarfslýsinguna.3. Þátttaka Grindvíkinga í íþróttum og tómstundum í Reykjanesbæ
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðstjóri frístunda- og menningarsviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram bréf frá formanni bæjarráðs Reykjanesbæjar vegna þátttöku barna og ungmenna frá Grindavík í íþróttum og tómstundum í Reykjanesbæ, dags. 18. október 2023.
Málinu er frestað til næsta fundar bæjarráðs.4. Geithafurinn - skjaldarmerki Grindavíkur
Sviðstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram tillaga um að kaupa "styttu" sem er hönnuð eftir skjaldarmerki Grindavíkur.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.5. Fjárhagsáætlun 2024-2027 - Grindavíkurbær og stofnanir
Frumvarp til fjárhagsáætlunar fyrir Grindavíkurbæ og stofnanir 2024-2027 lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa fjárhagsáætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.