Bæjarráð Grindavíkur - 1565. fundur
- 01.12.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1565
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður heimildar að taka á dagskrá með afbrigðum Umhverfismál - Trúnaðarmál, 2012001, sem dagskrárlið nr. 8.
Samþykkt samhljóða.
1. Kaup á hlut í skólahúsnæði Keilis
Friðjón Einarsson var gestur fundarins í gegnum fjarfundabúnað undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram erindi frá formanni bæjarráðs Reykjanesbæjar vegna fjárhagslegrar aðkomu að rekstri Keilis.
Boðað er til kynningarfundar um málið næstkomandi föstudag.2. Sjúkraflutningar í Grindavík
Friðjón Einarsson var gestur fundarins í gegnum fjarfundabúnað undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram fundargerð 51. fundar í stjórn BS.
Bæjarráð harmar það að ekki var haft samráð við bæjaryfirvöld í Grindavík við gerð samnings um sjúkraflutninga í Grindavík og óskar eftir að fá að sjá samninginn.3. Ósk um niðurfellingu leigu 2020
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málinu er frestað.
Upplýsinga- og markaðsfulltrúa falið að afla frekari gagna.4. Kjarasamningar - Stytting vinnuviku
Fyrirkomulag á styttingu vinnuviku hjá Þrumunni lagt fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir fyrirkomulagið.5. Upphæð styrkja vegna íþróttaafreka 2021
Lögð fram tillaga að upphæð styrkja vegna íþróttaafreka árið 2021.
Bæjaráð samþykkir tillöguna.6. Janus heilsuefling - erindi vegna forvarna á Suðurnesjum
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram bréf frá Janus-heilsueflingu um fjölþætta heilsueflingu 65 í sveitarfélögum.7. Stígamót - styrkbeiðni
Stígamót óska eftir rekstrarstyrk.
Bæjarráð samþykkir að styrkja um 50.000 kr. á árinu 2021.