Bæjarráð Grindavíkur - 1512. fundur
- 09.04.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1512
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Félag eldri borgara í Grindavík: Aðstaða vegna félagsstarfa
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sátu fundinn undir þessu máli.
Málinu var frestað á síðasta bæjarráðsfundi.
Erindi frá félaginu varðandi aðstöðu vegna félagsstarfa lagt fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að draga upp samning um afnot félags eldri borgara á aðstöðu í Víðihlíð.2. Hjólreiðadeild UMFG - Bikarmót í hjólreiðum
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessu máli.
Bæjarráð Grindavíkur gerir ekki athugasemdir við að reiðhjólamótið verði haldið.3. Tilboð í stefnumótun fyrir Kvikuna
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessu máli.
Lögð fram tilboð í stefnumótunarvinnu fyrir Kvikuna.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að semja við Strategíu um verkefnið með það fyrir augum að frumdrög liggi fyrir í haust.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að fjárhæð 3.000.000 kr. á rekstur Kvikunnar sem fjármagnaður verið af handbæru fé bæjarsjóðs.4. Sjóarinn síkáti 2019
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessu máli.
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um Sjóarann síkáta 2019.5. Samstarfssamningur um umhirðu á félagssvæði 2019
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessu máli.
Uppfærður samningur lagður fyrir bæjarráð. Jafnframt er lagt fram erindi frá Kvennaráði þar sem farið er fram á sambærilegan styrk.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að fjárhæð 2.500.000 kr. á lið 09803-9922 sem fjármagnaður verði með lækkun lykils 1110 hjá vinnuskólanum um 2.500.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.
Sviðsstjóra er falið að afla frekari gagna vegna beiðni Kvennaráðs.6. Vinnuskólinn - Starfsáætlun 2019
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessu máli.
Minnisblað vegna Vinnuskóla Grindavíkur 2019 lagt fram.7. Ósk um styrk
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessu máli.
Lögð fram drög að samningi við Íþróttafélagið Nes ásamt beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun að upphæð 550.000 kr.
Bæjarráð samþykkir samninginn og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2019 að fjárhæð 550.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.8. Ársuppgjör 2018 - Grindavíkurbær og stofnanir
Ársreikningur 2018 lagður fram ásamt skýringum forstöðumanna á helstu frávikum rekstrareininga.
Bæjarráð vísar ársreikningi Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2018 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.9. Beiðni um að Járngerðarstaðir verði skráð lögheimili í þjóðskrá
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna með heitisbreytingu á Vesturbraut 14.
10. Bólusetningar barna gegn alvarlegum smitsjúkdómum
Fræðslunefnd vísar erindinu til bæjarráðs til að skoða lagalegan grundvöll fyrir slíkum inntökuskilyrðum.
Bæjarráð samþykkir að fela lögfræðingi Grindavíkurbæjar að meta lagalegan grundvöll að setja bólusetningu sem skilyrði fyrir leikskólavist.11. Vegagerðin - Tillaga um lækkun umferðarhraða
Lögð fram tillaga frá Vegagerðinni að tilfærslu á hámarkshraða á Suðurstrandarvegi austan Þórkötlustaðavegar. Í dag er þetta þannig að frá þéttbýlismörkum er 70 km/klst hámarkshraði ca. 40m austur fyrir Þórkötlustaðarveg. Tillagan er að með tilliti til veglínu og vegna nálægðar vegamóta við Þórkötlustaðarveg sé rétt að færa þessi mörk austar og að þeim stað sem framkvæmdir við nýjan Suðurstrandarveg hófust árið 2005 um 1500 m austan við Þórkötlustaðarveg.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillöguna.