Bæjarráð Grindavíkur - 1555. fundur
- 01.09.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1555
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Ytra mat á skólaþjónustu
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, yfirsálfræðingur og formaður fræðslunefndar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skýrsla frá Háskólanum á Akureyri um ytra mat á skólaþjónustu Grindavíkurbæjar er lögð fram.2. Menntamálastofnun: Skýrsla um ytra mat Grunnskóla Grindavíkur
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, yfirsálfræðingur og formaður fræðslunefndar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram bréf frá Menntamálastofnun vegna umbótaverkefna Grunnskóla Grindavíkur í kjölfar úttektar á starfi skólans.
Samkvæmt bókun fræðslunefndar hefur nefndin reglulega fengið upplýsingar um stöðu umbótaáætlunar í skólanum og hefur undanfarið verið unnið samkvæmt þeirri áætlun og er þeim nú lokið.
Bæjarráð tekur undir með fræðslunefnd og lítur svo á að vel hafi tekist til með umbætur í skólanum.3. Verkefni umhverfis- og skipulagssviðs
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram yfirlit yfir verkefni sviðsins síðastliðið sumar.4. Stígur frá Grindavík vestur að golfvelli
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hönnun stígsins og kostnaðaráætlun lögð fram.5. Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs - Beiðni um fjárstuðning
Lögð fram beiðni um fjárstuðning lögð fram.
Bæjarráð vísar erindinu til umræðu í fjárhagsáætlun fyrir árið 2021.6. Fjárfestingaryfirlit janúar-júní 2020
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fjárfestingaáætlun 2020 lögð fram ásamt yfirliti yfir framkvæmdir janúar - júní 2020.7. Rekstraryfirlit janúar - júní 2020
Lagt fram rekstraryfirlit janúar - júní 2020 ásamt skýringum á helstu frávikum.
8. Fjárhagsáætlun 2021-2024 - Grindavíkurbær og stofnanir
Drög að tímaramma fyrir fjárhagsáætlun 2021-2024 lögð fram. Einnig er lagt fram yfirlit yfir staðgreiðslutekjur 2020 og frumáætlun staðgreiðslutekna fyrir árið 2021.
Bæjarráð samþykkir tímaramma fjárhagsáætlunar.9. Erindi frá íbúum við Arnarhraun
Erindið lagt fyrir að beiðni Hallfríðar Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Bæjarráð vísar erindinu til þjónustumiðstöðvar og óskar eftir tillögum um hvernig hægt sé að gera úrbætur við sparkvöllinn.10. Fundargerðir og gögn fjallskilanefndar
Fundargerð fjallskilanefndar, dags. 19. ágúst 2020, er lögð fram.
Réttað verður í Þórkötlustaðarétt sunnudaginn 20. september kl. 14:00. Gefnar hafa verið út leiðbeiningar vegna gangna og rétta vegna Covid-19 hættustigs almannavarna.
11. Lionsklúbbur Grindavíkur sækir um styrk
Umbeðin styrkbeiðni jafngildir húsaleigu sem klúbburinn greiddi vegna kútmagakvölds sem haldið var í íþróttahúsinu í mars 2020 sem er 152.000 kr..
Bæjarráð samþykkir erindið af styrktarlið bæjarráðs.