Bæjarráð Grindavíkur - 1509. fundur
- 05.03.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1509
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Austurvegur 1: Umsókn um byggingarleyfi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs ásamt forstöðumanni íþróttamannvirkja sátu fundinn undir þessum dagskrárlið og upplýstu um stöðu framkvæmda.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að fá kostnaðaráætlun á þá þætti sem eftir er að vinna svo taka megi húsið í notkun í haust.2. Breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar
Málinu er frestað til næsta fundar.
3. Sveitarfélögin og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Isavia leggur til að sveitarfélögin á Suðurnesjum vinni að samfélagslegum verkefnum í samvinnu við atvinnulífið og hagsmunasamtök út frá Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með verkefnið.4. Breyting á rekstrarleyfi veitinastaðar - Cactus ehf.
Beiðni um umsögn vegna umsóknar Cactus veitinga ehf að rekstrarleyfi Salthússins fari úr flokki 2 í flokk 3.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.5. Leikskólinn Laut - beiðni um viðauka 2019 vegna Karellen
Skólastjóri Leikskólans Lautar óskar eftir viðauka vegna ársins 2019 að fjárhæð 250.000 kr. á lykilinn 04111-4012 til að kaupa og reka viðbót við leikskólakerfið Karellen til að halda utanum leikskólagjöld.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.6. Upptökur á bæjarstjórnarfudum
Málið er lagt fyrir af forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að eingöngu verði um útsendingu að ræða á meðan á fundi stendur en ekki að upptaka verði geymd á veraldarvefnum.
Bókun
Fulltrúi U-listans telur að upptaka ætti að lifa að minnsta kosti að næsta bæjarstjórnarfundi til þess að fleiri hefðu tök á að sjá útsendinguna.7. Vinnuskólinn - Starfsáætlun 2019
Verkefni og skipulag Vinnuskólans lögð fram.
8. Lionsklúbbur Grindavíkur Ósk um styrk
Óskað er eftir styrk sem jafngildir leigugjaldi vegna kútmagakvölds í íþróttahúsinu.
Bæjarráð samþykkir að taka af styrktarlið bæjarráðs til að styrkja Lions vegna húsaleigu kútmagakvöldsins.9. Styrkbeiðni vegna þorrablóts
Þær íþróttadeildir sem stóðu fyrir þorrablóti 2019 í íþróttahúsinu óska eftir styrk frá Grindavíkurbæ.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 400.000 kr. sem tekinn verði af styrktarlið bæjarráðs.