Bæjarráð Grindavíkur - 1650. fundur
- 25.07.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1650
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Sérstakur húsnæðisstuðningur - Breyting á reglum
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram yfirlit um kostnaðaráhrif sem breytingar á reglunum hafa í för með sér.
Bæjarráð samþykkir að nýjar reglur taki gildi 1. september 2023.2. Beiðni um viðauka - Stofnbúnaður
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2023 að fjárhæð 3.610.000 kr. á bókhaldslið 02011-2851, til kaupa á skrifstofubúnaði vegna nýrra starfsmanna í barnaverndar- og félagsþjónustu Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð samþykkir viðaukabeiðnina og samþykkir jafnframt að viðaukinn verði fjármagnaður með hækkun á áætlun staðgreiðslu.3. Beiðni um viðauka vegna eldgoss
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 20.000.000 kr. á rekstrareininguna 07451 Náttúruvá - jarðskjálftar og eldgos.
Bæjarráð samþykkir viðaukabeiðnina og að fjármögnun verði með lækkun á handbæru fé.4. Innri leiga Eignasjóðs - viðaukabeiðni við fjárhagsáætlun 2023
Lögð er fram beiðni um viðauka vegna hækkunar gjalda hjá aðalsjóði um 408.724.745 kr. og hækkun gjalda þjónustumiðstöðvar um 6.209.974 kr., sbr. framlagða sundurliðun.
Fjármögnun viðaukans er með hækkun tekna eignasjóðs að fjárhæð 414.934.719 kr.
Bæjarráð samþykkir viðaukabeiðnina.5. Fjárhagsáætlun 2024-2027 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lagt fram yfirlit staðgreiðslu 2015-2023 og fyrstu drög að staðgreiðsluáætlun fyrir árið 2024.
6. Fasteignagjöld 2024
Lögð fram drög að áætlun fasteignagjalda fyrir árið 2024.
7. Erindi frá Bændasamtökum Íslands
Lagt fram bréf frá Bændasamtökum Íslands, dags. 6. júlí 2023 varðandi lausagöngu/ágangs búfjár.