Bæjarráð Grindavíkur - 1537. fundur
- 22.01.2020
- Fundargerð
- Kl. 15:30 - 17:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1537
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Fjölþætt heilsuefling 65 í Grindavík - Heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samningur við Janus - Heilsueflingu slf. lagður fyrir bæjarráð til staðfestingar.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2020 að fjárhæð 13.000.000 kr.
Bæjarráð staðfestir samninginn og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2020 að fjárhæð 13.000.000 kr. á deildina 02421 og hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.2. Sjóarinn síkáti 2020
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að verkefnisáætlun fyrir Sjóarann síkáta 2020 lögð fram. Hátíðin fer fram 5.-7. júní í ár. Dagskrá hátíðarinnar mun taka mið af niðurstöðu könnunar er gerð var í kjölfar hátíðarinnar 2019. Ýmsar breytingar verða á dagskrá og ásýnd hátíðarinnar í takt við vilja íbúa.3. Framtíðarsýn fyrir Sjóarann síkáta
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að framtíðarsýn fyrir Sjóarann síkáta lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt framtíðarsýnina fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir framtíðarsýn fyrir Sjóarann síkáta og vísar henni til bæjarstjórnar til staðfestingar.4. Viðburðir á frístunda- og menningarsviði 2020
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að í stað Menningarviku í mars verði viðburðum dreift á vormánuði undir heitinu Menningarvor í Grindavík. Viðburðadagatal lagt fram.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.5. Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2020
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að vinnutilhögun vinnuskólans sumarið 2020.
Sviðsstjóra falið að vinna áfram að tillögunni í samræmi við umræður á fundinum.6. Vígsla nýrra íþróttasala
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt er til að nýja viðbyggingin verði vígð 2. febrúar nk. en UMFG verður 85 ára 3. febrúar nk.7. Rekstur Gjárinnar 2019
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram yfirlit um rekstur Gjárinnar árið 2019.8. Viðburðir um jól og áramót 2019-2020
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs.9. Verklagsreglur um úthlutun styrkja til forvarnamála
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lög fram drög að verklagsreglum um úthlutun styrkja til forvarnarmála.
Gert er ráð fyrir mögulegum styrkveitingum í fjárhagsáætlun 2020.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.10. Styrkumsókn vegna kvikmyndar um íslensku jólasveinana
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
SEK production sækir um styrk vegna framleiðslu kvikmyndar um íslensku jólasveinana.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.11. Kaup á hlut í skólahúsnæði Keilis
Minnisblað lagt fram.
12. Gatnalýsing Útboð Lampa
Umsjónarmaður þjónustumiðstöðvar sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði frá S. Guðjónssyni að fjárhæð 40.574.845 kr. og felur Umsjónarmanni þjónustumiðstöðvar að gagna frá samningum.13. Öryggisúttekt á hafnarsvæðinu í Grindavík
Málið er lagt fyrir að beiðni Sigurðar Óla Þórleifssonar forseta bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að fá óháðan aðila til að gera öryggisúttekt á hafnarmannvirkjum Grindavíkurhafnar og felur hafnarstjóra framhald málsins.