Bæjarráð Grindavíkur - 1713. fundur
- 23.06.2026
- Fundargerð
- Kl. 10:00 - 11:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1713
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Guðbjörg Eyjólfsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Magnús Már Jakobssonaðalmaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Guðjón Bragason sat fundinn á Teams.
1. Aðalskipulag Grindavíkurbæjar - endurskoðun
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Atli Geir Júlíusson ráðgjafi.
Í samræmi við 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins innan tólf mánaða frá sveitarstjórnarkosningum.
Atli Geir hélt kynningu um endurskoðun aðalskipulagsins hvað varðar hlutverk sveitarstjórnar, lögbundin ferli og helstu viðfangsefni sem framundan eru.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram með það að leiðarljósi að endurskoðun verði hafin.2. Endurnýjun skólalóðar við Ásabraut
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram tillaga að endurnýjun skólalóðar við Ásabraut ásamt kostnaðaráætlun við fyrsta áfanga.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.3. Sótt um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til uppbyggingar
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt er fram erindi frá Ferðamálastofu þar sem tilkynnt er um synjun á umsókn Grindavíkurbæjar um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Með erindinu fylgir rökstuðningur fyrir ákvörðuninni.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.4. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 48. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Fyrir liggur svofelld tillaga að skipan í almannavarnanefnd Grindavíkur:
Aðalmenn:
A. Bæjarstjóri
B. Einar Sveinn Jónsson, slökkviliðsstjóri
C. Sigurður A. Kristmundsson, hafnarstjóri/innviðasvið
D. Bogi Adolfsson, fulltrúi björgunarsveitar
E. Páll Þorbjörnsson, fulltrúi Rauða krossins
F. Fulltrúi lögreglu
G. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (fast sæti)
Varamenn:
a. Hjálmar Hallgrímsson frá Grindavíkurbæ
b. Pétur Már Benediktsson, varaslökkviðiðsstjóri
c. Sigurður Rúnar Karlsson, eigna- og veitustjóri
d. Otti Rafn Sigmarsson frá björgunarsveit
e. Aldís Hauksdóttir frá Rauða krossinum
f. Fulltrúi lögreglu
Ekki hafa borist tilnefningar um fulltrúa lögreglu.
Bæjarráð samþykkir ofangreinda nefndarskipan.5. Fundargerðir 2026 -Kalka sorpeyðingarstöð
Fundargerð 579. stjórnarfundar Kölku dags. 14.04.2026 er lögð fram til kynningar.
6. Fundargerðir 2026 -Kalka sorpeyðingarstöð
Fundargerð 580. stjórnarfundar Kölku dags. 12.05.2026 er lögð fram til kynningar.