Bæjarráð Grindavíkur - 1686. fundur
- 15.07.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1686
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Fannar Jónasson sat fundinn í Teams.
1. Útkomuspá fyrir árið 2025
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og launafulltrúi.
Útkomuspá fyrir árið 2025 er lögð fram.2. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og launafulltrúi.
Lögð fram drög að forsendum fyrir fjárhagsáætlun 2026-2029.3. Starfsmannamál
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og launafulltrúi.
Lögð fram tillaga um að uppsagnarfrestur hjá starfsmönnum Grindavíkurbæjar sem hafa ótímabundinn ráðningarsamnning verði 6 mánuðir ef uppsögn er að frumkvæði Grindavíkurbæjar. Um er að ræða tímabundna ráðstöfun fram til sveitarstjórnarkosninga í maí 2026 en hafi aðlögunartíma út árið 2026.
Ef starfsmaður segir sjálfur upp störfum gilda um það ákvæði kjarasamnings og eru það 3 mánuðir.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með tveimur atkvæðum. Gunnar Már situr hjá.
Bæjarráð felur launafulltrúa að útbúa viðauka við ráðningarsamninga þeirra sem hlut eiga að máli.4. Leigusamningur vegna Kvikunnar 2025
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Leigutakar á Kvikunni hafa bakkað út úr samningnum.5. Ný vefsíða Grindavíkurbæjar
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt fram tilboð frá Hugsmiðjunni vegna áframhaldandi vinnu við nýjan vef Grindavíkurbæjar að fjárhæð 8.000.000 kr. Verkið var sett á bið í nóvember 2023.
Bæjarráð samþykkir tilboðið.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram og upplýsa bæjarráð um framvindu verkefnisins.6. Aðstaða UMFG til æfinga og keppni veturinn 2025-2026
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Rætt um aðstöðumál knattspyrnu- og körfuknattleiksdeilda UMFG veturinn 2025-2026.
Bæjarráð óskar eftir að forsvarsmenn UMFG til fundar við bæjarráð og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að koma á fundi.7. Útleiga á íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram fyrirspurn frá framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur og forsætisráðuneytinu um fyrirhugaða útleigu íbúða í eigu bæjarins ásamt tillögu að svarbréfi til þeirra.
Einungis 4 umsóknir falla undir þau skilyrði sem sett voru í auglýsingu og því munu 4 íbúðir fara í útleigu frá 1. september 2025. Bæjarstjóra falið að upplýsa nefndina um niðurstöðu málsins.8. Barnaverndarþjónusta Samvinna
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lögð fram drög að samningi um barnaverndarþjónustu ásamt áætluðum kostnaði Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög.
Bæjarstjóra falið að semja um endanlega kostnaðarhlutdeild Grindavíkurbæjar.9. Rekstur þjónustuúrræða í þágu fatlaðs fólks
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagðir fram reikningar frá Suðurnesjabæ og Reykjanesbæ vegna sameiginrekinna stofnana.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að ræða við bæjarstjóra sveitarfélaganna.10. Víkurbraut 58 - Leyfisveitingar
Lagt fram erindi frá sýslumannsembættinu á Suðurnesjum vegna umsagnarbeiðni um leyfi til reksturs veitingastaðar í flokki II - A. Umsækjandi er Brimex ehf., kt. 441124-0230 vegna Geo Hótels að Víkurbraut 58 í Grindavík. Bæjarráð hafði áður afgreitt beiðni um rekstrarleyfi í flokki IV - A Hótel fyrir sama umsækjanda.
Bæjarráð Grindavíkur gerir ekki athugasemd við að veitt verði rekstrarleyfi í flokki II - A fyrir veitingastað að Víkurbraut 58, í samræmi við umsókn.