Bæjarráð Grindavíkur - 1511. fundur
- 02.04.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1511
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Tjaldsvæði: Rekstur 2018
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Greinargerð um tjaldsvæðið og rekstur þess 2018 lögð fram.
Bæjarráð felur upplýsinga- og markaðsfulltrúa að koma með útfærslu varðandi vetraropnun á tímabilinu 1. október til 31. mars.2. Félag eldri borgara í Grindavík: Aðstaða vegna félagsstarfa
Málinu er frestað til næsta fundar.
3. Sameiginlegur fundur sveitarstjórnarmanna og þingmanna vegna WOW air
Lögð fram fundargerð sameiginlegs fundar sveitarstjórnarmanna og þingmanna vegna Wow air sem haldinn var 30.03.2019.
4. Tölvukerfi Grindavíkurbæjar
Tilboð Þekkingar ehf. vegna bætingar á netumhverfi bæjarins lagt fram.
Óskað er eftir heimild til að nýta í þessa framkvæmd hluta af því fé í áætlun sem ætlað var í kaup á nýjum tölvuþjónum en í áætlun er 10.800.000 sem ætluð voru til þeirra hluta.
Bæjarráð samþykkir erindið.5. Byggðastofnun - Samfellt þjónustukort fyrir allt landið
Ráðgert er að að gera gagnvirkt yfirlitskort með upplýsingum um aðgengi landsmanna að almennri þjónustu á vegum bæði stjórnvalda og einkaaðila. Markmiðið er að upplýsingar um þá þjónustu sem er fyrir hendi um land allt verði aðgengilegri og áreiðanlegri en nú er.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með verkefnið og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.6. Kór Grindavíkurkirkju - Tónleikaferð
Kór Grindavíkurkirkju sækir um styrk vegna fyrirhugaðrar tónleikaferðar til Þýskalands 7. júní nk.
Bæjarráð samþykkir að styrkja um 15.000 kr. á hvern kórfélaga í ferðinni af styrktarlið bæjarráðs.7. Upptökur á bæjarstjórnarfundum
Á 494. fundi bæjarstjórnar var málinu vísað til bæjarráðs til frekari umfjöllunar.
Bæjarráð samþykkir að upptökur af bæjarstjórnarfundi verði aðgengilegar fram til næsta bæjarstjórnarfundar.8. Rekstrarleyfi veitingastaðar í flokki III - Fishhouse ehf
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.9. Rekstrarleyfi gististaðar í flokki II - Bergbúar ehf
Fyrir liggja umsagnir frá HES og Slökkviliði Grindavíkur. Enn fremur frá byggingarfulltrúanum í Grindavík sem tekur fram að umsögnin nái til þess hluta húsnæðisins sem merkt er RÝMI B.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.