Bæjarráð Grindavíkur - 1510. fundur
- 19.03.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1510
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskað formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem 14. mál:
1808023 - Vinnuumhverfi á bæjarskrifstofunni
Samþykkt samhljóða.
1. HS Orka ehf - Eldvarpavirkjun staðarvalsgreining
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann vinnu vegna staðarvalsgreiningar á Eldvarpavirkjun.
2. Kvikan - Greinargerð um starfsemi og stöðu
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram greinargerð upplýsinga- og markaðsfulltrúa Grindavíkurbæjar um starfsemi og stöðu Kvikunnar.
Bæjarráð samþykkir að Kvikan verði opin til áramóta og gerður verði tímabundinn ráðningarsamningur við starfsmenn til þess tíma. Á meðan verði unnið að framtíðarstefnumótun fyrir Kvikuna.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og upplýsinga- og markaðsfulltrúa að leita eftir tilboðum í stefnumótunarvinnuna.3. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóra er falið að vinna málið áfram.4. Samstarfssamningur um umhirðu á félagssvæði 2019
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóra er falið að vinna málið áfram.5. Aðstaða til tónleikahalds í Grindavík
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð vísar málinu til stefnumótunarvinnu Kvikunnar.6. Tónleikar fyrir sjómannadagshelgina
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Körfuknattleiksdeild UMFG og Golfklúbbur Grindavíkur óska eftir stuðningi vegna tónleika fyrir sjómannadagshelgina.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að afla frekari upplýsinga um kostnað.7. Breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar
Bæjarstjórn samþykkti á fundi nr. 493 breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sem fólu í sér að við 47. gr. B bættist við 3. töluliður um öldungaráð.
Kjósa þarf fulltrúa Grindavíkurbæjar í öldungaráð en málinu var frestað á 1509. fundi bæjarráðs.
Bæjarráð tilnefndir eftirtalda í öldungaráð:
Sæmundur Halldórsson
Friðrik Björnsson og
Hallfríður Hólmgrímsdóttir.8. Grindavíkurbær - Reglur, samþykktir og stefnur
Lagt fram yfirlitsskjal um samþykktir, reglur og stefnur Grindavíkurbæjar.
9. Bólusetningar barna gegn alvarlegum smitsjúkdómum
Fulltrúi Framsóknarflokksins minnir á að bólusetningum barna er ætlað að verja börn gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Öllum börnum með lögheimili hér á landi stendur til boða bólusetning gjaldfrjálst. Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur til að frá haustinu 2019 verði samþykki fyrir dagvistun í leikskólum Grindavíkur háð því að foreldrar eða forráðamenn framvísi skírteini sem staðfestir að börn hafi verið bólusett samkvæmt því skipulagi sem sóttvarnarlæknir leggur fram.
Bæjarráð vísar málinu til fræðslunefndar til frekari útfærslu.10. Útlendingastofnun - Þjónustusamningur
Óskað er eftir afstöðu bæjarráðs til þess að gera þjónustusamning við stofnunina vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.11. Suðurstrandarvegur - Vegstæði og þróun byggðar
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um vegstæði Suðurstrandarvegar.
Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar til frekari umræðu.12. Tillaga til þingsályktunar um stöðu sveitarfélaganna á Suðurnesjum. 187. mál.
Bæjarráð Grindavíkur fagnar fram kominni þingsályktunartillögu og tekur jafnframt undir rökstuðning og skýringar í umsögn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 11. mars sl. um tillöguna. Það er löngu tímabært að leggja fram aðgerðaáætlun um hvernig efla megi þjónustu ríkisins við íbúa á Suðurnesjum og mæta fordæmalausri fólksfjölgun á svæðinu.
13. Íbúasamráð í sveitarfélögum og þátttaka íbúa
Lagt fram.