Bæjarráð Grindavíkur - 1636. fundur
- 21.02.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1636
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Framkvæmdir við klæðningu á Ásabraut 2 (Grunnskóli Grindavíkur)
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Opnunarfundargerð útboðs vegna klæðningar á grunnskólanum við Ásabraut 2 lögð fram.2. Umsókn um lóð nr. 2 á iðnaðarsvæði, i5.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Matorka hefur sótt um að fá svæði nr. 2 úthlutað á iðnaðarsvæði i5 til áframhaldandi uppbyggingar fiskeldis á svæðinu. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram.3. Húsnæðisáætlun Grindavíkurbæjar 2023
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að húsnæðisáætlun Grindavíkurbæjar 2023 lögð fram til upplýsinga og umræðu.4. Ferðaþjónustubílar í þjónustumiðstöð - viðaukabeiðni
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er viðauka að upphæð 7,5 milljónum króna vegna kaupa á bíl sem nýtist ferðaþjónustu sem þjónustumiðstöðin sinnir fyrir félagsþjónustu- og fræðslusvið sveitarfélagsins. Viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.5. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að erindisbréfi 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar lögð fram.6. Beiðni um aukið stöðugildi í félagsþjónustu
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir heimild til að ráða í stöðugildi í barnavernd og félagsþjónustu hjá bæjarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að leggja fram viðaukabeiðni fyrir bæjarstjórn.7. Húsnæðismál Fisktækniskóla Íslands
Farið yfir stöðu málsins.
8. Undanþágur frá verkfalli
Vegna mögulegra verkfalla vill kjarasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga koma því á framfæri við sveitarfélög að sækja um undanþágu fyrir starfsemi sem varðar almannaöryggi.
Auk þess hefur sambandið vakið athygli á því að sveitarstjórnir hugi vel að viðbúnaði og áfallaþoli til að tryggja að ekki skapist hættuástand.9. Hjartastuðtæki á stofnunum bæjarins
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2023 að fjárhæð 1.140.000 vegna hjartastuðtækja á stofnunum bæjarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.10. Lánasjóður sveitarfélaga - framboð til stjórnar
Lagt fram erindi dags. 10. febrúar sl. frá kjörnefnd Lánasjóðsins þar sem auglýst eftir framboðum til stjórnarsetu.