Bæjarráð Grindavíkur - 1587. fundur
- 06.07.2021
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 15:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1587
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Alexander Veigar Þórarinssonvaramaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Samanburður á fasteignamati og fasteignagjöldum árið 2021
Lögð fram skýrsla Byggðastofnunar um samanburð á fasteignamati og fasteignagjöldum viðmiðunareignar fyrir árið 2021 um allt land á 96 matssvæðum.
Hæstu göldin eru á Seltjarnarnesi 490 þús. kr. Lægstu gjöldin eru á Raufarhöfn, um 111 þús. krónur.
Fram kemur að Grindavík er að innheimta 316 þús. krónur í fasteignagjöld og eru einungis 20 matssvæði með lægri gjöld.2. Samstarf við viðbragðsaðila aðliggjandi sveitarfélaga vegna eldgos í Fagradalsfjalli
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samkomulag viðbragðsaðila, þ.e. slökkviliðs og sjúkrabíla, komi til að Suðurstrandavegurinn rofni lagt fram.3. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að útboðsgögnum fyrir verkfræðihönnun lögð fram ásamt myndum sem sýna hvernig aðstaðan gæti litið út. Jafnframt er fundargerð öldungarráðs nr. 10 lögð fram til upplýsinga þar sem bókað var um hönnun félagsaðstöðunar.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram.4. Geymslusvæði við Eyjabakka
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárfestingaáætlun 2021 að fjárhæð 4.195.000 kr. til að klára framkvæmdina og að fjármögnun verði með lækkun á verkefninu 32-115110 Nýtt hverfi, gatnagerð og lagnir.
Bæjarráð samþykkir viðaukabeiðnina.5. Gerðavellir 17 Húsasótt
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Niðurstaða sýnatöku í aðstöðu dagmæðra við Gerðavelli 17 lögð fram til kynningar. Niðurstöður sýna að aðstaðan er hrein og örugg.6. Kæra- framkvæmdarleyfi Neyðarlínunnar ohf.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í kærumáli vegna framkvæmda Neyðarlínunar við rafmagnssteng og ljósleiðara í landi Ísólfsskála lögð fram. Úrskurðarnefndin vísaði málinu frá.7. Viðhald félagsíbúða Viðaukabeiðni
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir viðauka á fjárhagsáætlun 2021 að fjárhæð 2.500.000 kr. vegna viðhalds á félagslegum íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.8. Túngata 15-17 Viðaukabeiðni
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er viðauka vegna rakatjóns við Túngötu 15-17 að fjárhæð 8.000.000 kr.
Lagt er til að fjármögnun viðaukans verði með lækkun á fjárfestingaverkefni 32-110202 Skólabraut Myglu viðgerðir samtals 2.300.000kr og með lækkun á handbæru fé kr. 5.700.000 kr.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og fjármögnunina.9. Almannavarnarnefnd Grindavíkur - 72
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.