Bæjarráð Grindavíkur - 1551. fundur
- 16.06.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1551
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Bjarg íbúðafélag - Um húsnæðissjálfseignastofnun
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun óskar eftir staðfestingu bæjarfélagsins vegna veitingar 12% stofnframlags til byggingar á 12 íbúðum að Víkurhópi 57 á vegum Bjargs íbúðafélags. Áætlaður heildarkostnaður er 326.861.326 kr. og hlutur Grindavíkurbæjar 39.223.359 kr. að meðtöldum gatnagerðargjöldum, tengigjöldum og byggingarleyfisgjöldum sem sem teljast hluti af stofnframlagi bæjarfélagsins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að staðfesta stofnframlag Grindavíkurbæjar.2. Frágangur á lóð í kringum íþróttahús
Málinu frestað til næsta bæjarráðsfundar.
3. Styrktarbeiðni vegna búnaðar til útsendinga íþróttakappleikja
Lögð fram styrkbeiðni frá aðalstjórn UMFG vegna kaupa á búnaði til vefútsendinga.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til bæjarstjórnar vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir 2021.4. Greiðslur fyrir farsíma
Lögð fram tillaga að reglum um þátttöku Grindavíkurbæjar í farsímakostnaði starfsmanna vegna nota í þágu bæjarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar.5. Starfsumhverfi leikskóla og menntun kennara
Erindi frá starfsfólki á leikskólanum Laut og heilsuleikskólanum Króki lagt fram.
6. Erindi frá Öldungaráði Suðurnesja
Fundargerð dags. 25. maí 2020 lögð fram.