Bæjarráð Grindavíkur - 1581. fundur
- 11.05.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1581
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Fjölgun leikskólaplássa í Grindavík
Til fundarins mættu Pétur R Guðmundsson og Guðmundur Pétursson frá Skólum ehf. og kynntu hugmyndir sínar um stækkun leikskólans Króks.
2. Sumarstörf 2021
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 76.987.000 kr. vegna sumarstarfa ungmenna. Fjármögnun viðaukans er 22.416.000 kr. frá ríkinu og 54.571.000 kr. með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.3. Opnunartími bókasafns sumarið 2021
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir heimild á breyttum opnunartíma bókasafns þegar skólinn er í sumarleyfi án þess að stytta opnun. Opnunartími yrði frá 11:00 til 16:30 í stað 12:30-18:00.
Bæjarráð samþykkir erindið.4. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram.5. Eftirlitsmyndavélar við skólabyggingar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð felur sviðsstjórum að vinna málið áfram og skila niðurstöðum fyrir fjárhagsvinnu ársins 2022.6. Rekstraryfirlit janúar til mars 2021
Rekstraryfirlit janúar - mars 2021 er lagt fram.
7. Innri leiga Eignasjóðs - viðauki við fjárhagsáætlun 2021
Lögð er fram beiðni um viðauka vegna hækkunar gjalda hjá aðalsjóði um kr. 28.846.352, sbr. framlagða sundurliðun, sem fjármagnaður verði með hækkun tekna eignasjóðs að fjárhæð 28.390.233 og lækkun gjalda hjá þjónustumiðstöð um 456.119 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.8. Landskerfi bókasafna - Aðalfundur 2021
Lagt fram fundarboð aðalfundar Landskerfa bókasafna miðvikudaginn 19. maí 2021.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að Andrea Ævarsdóttir verði fulltrúi Grindavíkurbæjar á fundinum.