Bæjarráð Grindavíkur - 1679. fundur
- 03.04.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1679
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaraformaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Birgitta Hrund sat fundinn i gegnum Teams.
1. Niðurrif altjónseigna
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi (Teams)
Lögð fram drög að leiðbeiningar fyrir niðurrif mannvirkja í Grindavíkurbæ og listi yfir þau hús sem fyrir liggur að þarf að rífa.2. Samningur um stuðning við Björgunarsveitina Þorbjörn 2025
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri.
Lögð fram drög að samningi við Slysavarnardeildina Þorbjörn, dags. 13.3.2025.
Bæjarráð samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarstjórnar til staðfestingar.3. Útleiga á íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lagt fram yfirlit yfir stöðu íbúða í eigu Grindavíkurbæjar.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að vinna málið áfram.4. Staða Grindavíkur og sviðsmyndir um hvernig Grindavík og samfélag Grindvíkinga verður árið 2035
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri.
Umsögn Grindavíkurbæjar um skýrslu Deloitte er lögð fram.
Einnig er lagt fram minnisblað um drög að innkaupaferli í sprunguviðgerðum sem eftir er að vinna og minnisblað frá Consensa um rammasamningsútboð5. Drög um breytingar á lögum um veiðigjöld
Lögð fram drög að frumvarpi um breytingu á lögum um veiðigjald.
Bókun
Bæjarráð Grindavíkur minnir á að sjávarútvegsfyrirtæki í Grindavík glíma nú við fordæmalausar áskoranir vegna náttúruhamfara. Verði frumvarpið óbreytt að lögum má áætla að álögur á útgerðir í bænum aukist um tæplega 600 m.kr. á ári. Bæjarráð vísar til sviðsmyndagreiningar Deloitte, sem unnin var fyrir forsætisráðuneytið, sem sýnir vel að það er langt frá því að vera sjálfgefið að sjávarútvegur verði áfram sú undirstöðuatvinnugrein í Grindavík sem raunin er nú.
Atvinnulíf í bænum er í viðkvæmri stöðu en aflaheimildir hafa þó ekki flust frá Grindavík þrátt fyrir náttúruhamfarir. Það er jákvætt að starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja á þessari vetrarvertíð er að færast nær því umfangi sem áður var. Bæjarráð varar eindregið við því að aðgerðir stjórnvalda veiki forsendur atvinnulífs í bænum og leggur því til að framlagningu frumvarps til veiðigjalda verði frestað. Bæjarráð leggur einnig áherslu á að áður en frumvarpið verður að lögum liggi fyrir vandað mat á áhrifum tollabreytinga í alþjóðaviðskiptum.
Að lokum tekur bæjarráð undir bókun Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 28. mars 2025, þar sem lagst er gegn samþykkt frumvarpsins. Jafnframt vísar bæjarráð til greiningar KPMG sem unnin var fyrir samtökin. Í greiningunni er bent á margvíslegar neikvæðar afleiðingar fyrir nærsamfélög sem hlotist geta af því að auka álögur á atvinnulíf. Greiningin undirstrikar einnig vel að Grindavíkurbær er í hópi þeirra sveitarfélaga sem reiða sig hvað mest á sjávarútveg og fiskvinnslu. Mikilvægi þessarar starfsemi hefur jafnframt fengið auki vægi vegna þeirra erfiðu aðstæðna sem nú eru í bæjarfélaginu.