Bæjarráð Grindavíkur - 1637. fundur
- 07.03.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:45 - 18:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1637
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Uppfærð drög að erindisbréfi 50 ára afmælisnefndar lögð fram.2. Húsnæðismál Fisktækniskóla Íslands
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram bréf frá Fisktækniskólanum, dags. 23. febrúar 2023, varðandi húsnæðisvanda skólans.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.3. Skipulagsgreining Grindavíkurhöfn
Óskað er eftir viðauka á fjárhagsáætlun Grindavíkurhafnar fyrir árið 2023 að upphæð 13.312.366 kr. sem fjármagnaður yrði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.4. Leigusamningur - Tímabundin ívilnun
Lögð fram beiðni frá Guðlaugu Snorradóttur um tímabundna eftirgjöf leigu vegna leigu á rými vegna daggæslu barna í húsnæði bæjarins að Gerðavöllum 17.
Bæjarráð samþykkir að gefa eftir leigu út maí 2023.5. Sorphirða á Suðurnesjum í desember 2022 og janúar 2023
Lagður fram tölvupóstur frá framkvæmdastjóra Kölku, dags 21.02.2023, vegna fundar með Terra ehf. um sorphirðumál.
6. Afhendingaröryggi vatns og orku á Reykjanesi
Lögð fram fundargerð upplýsingafundar, dags. 6. febrúar sl. um afhendingaröryggi orku og vatns á Reykjanesi.
7. Rafmagnsleysi á Suðurnesjum vegna bilunar
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra til Orkustofnunar, dags. 27.02.2023, varðandi orkuöryggismál á Suðurnesjum.
8. Aðgerðir um orkuskipti og útfösun jarðefnaeldsneytis
Lögð fram bókun stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga á stjórnarfundi samtakanna þann 17. febrúar sl.