Bæjarráð Grindavíkur - 1588. fundur
- 20.07.2021
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 15:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1588
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Hleðslustöðvar í Grindavík
Samningur við Hleðsluvaktina lagður fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir saminginn og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að undirrita samninginn.2. Fasteignagjöld 2022
Lögð fram áætlun fasteignagjalda 2022 miðað við óbreyttar álagningarforsendur.
3. Styrkur til fráveituframkvæmda
Bréf frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, dags 9. júlí 2021, lagt fram.
Samþykktur styrkur er 30% af heildarkostnaði framkvæmda á árunum 2020 og 2021.4. Raunkostnaður málefna fatlaðra 2018-2020
Lagt fram yfirlit yfir raunkostnað Grindavíkurbæjar vegna málefna fatlaðra árin 2018-2020.
5. Nafn á nýju hrauni og gígum við Fagradalsfjall
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur með vísan til 2. mgr. 7. gr. laga nr. 22/2015 um örnefni ákveðið að staðfesta ákvörðun bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar um nýtt örnefni, "Fagradalshraun" við Fagradalsfjall.