Bæjarráð Grindavíkur - 1561. fundur
- 20.10.2020
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1561
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður heimildar að taka á dagskrá með afbrigðum fráveitu Grindavíkurbæjar - útrás 1. áfangi, sem dagskrárlið nr. 3.
Samþykkt samhljóða.
1. Suðurhóp 2 (Áfangi 2 við Hópsskóla) - umsókn um byggingarleyfi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Verksamningur vegna áfanga tvö við Hópsskóla lagður fram ásamt fyrstu framvinduskýrslu verkeftirlits.2. Samningur um þjónustu um vatn og fráveitu
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagður er fram til samþykktar samningur við NRTF (Naval Radio Transmitter Facility Grindavík) um þjónustu vegna vatns og fráveitu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.3. Fráveita Grindavíkurbæjar - útrás 1. áfangi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Niðurstöður verðkönnunar í dælubúnað og allan tengdan vélbúnað fyrir verkið "Dælustöð við Bakkalág, Grindavík" lagðar fram.
Óskað er heimildar að ganga til samninga við Vatnsvirkjann ehf.
Bæjarráð heimilar sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga til samninga við Vatnsvirkjann ehf.4. Leiguverð á íbúðum í Víðihlíð
Lagðar fram tillögur vinnuhóps um leiguverð í íbúðum í Víðihlíð.
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur vinnuhópsins og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögurnar.5. Fjárhagsáætlun 2021-2024 - Grindavíkurbær og stofnanir
Frumvarp til fjárhagsáætlunar fyrir Grindavíkurbæ og stofnanir 2021-2024 lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa fjárhagsáætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.6. Víkurbraut 58 ehf - þrotabú
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita yfirlýsinguna.
7. Kjarasamningar - Stytting vinnuviku
Samkomulag um styttingu vinnutíma á bókasafni og leikskólanum Laut lagt fyrir bæjarráð til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir framlagt samkomulag starfsmanna bókasafns og starfsmanna leikskólans í Laut um styttingu vinnutíma.
Breytingin taki gildi frá og með 1. janúar 2021.8. Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - aðalfundarboð
Aðalfundur samtakanna verður haldinn sem fjarfundur 30. október 2020.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.9. Samtök orkusveitarfélaga - aðalfundarboð
Aðalfundur samtakanna verður haldinn sem fjarfundur 5. nóvember 2020.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.10. Landvernd - vindorkuver
Bréf frá Landvernd, dags. 12. október 2020 lagt fram.
Fram kemur í bréfinu að Landvernd telur skynsamlegt að sveitarfélög bíði með breytingar á skipulagi fyrir vindorkuver þar til niðurstaða rammaáætlunar liggur fyrir.