Bæjarráð Grindavíkur - 1687. fundur
- 19.08.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1687
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Aðstaða UMFG til æfinga og keppni veturinn 2025-2026
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, forstöðumaður íþróttamannvirkja og frá UMFG: Ingibergur Þór Jónasson og Bryndís Gunnlaugsdóttir (Teams).
Bryndís kynnti sýn kkd UMFG á starfsemina á komandi leiktíð.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að fá fjárhagsáætlun UMFG fyrir næsta ár og leggja fyrir bæjarráð.2. Fasteignir Grindavíkurbæjar - aðgerðaráætlun
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar, Sindri Þrastason frá VSS og Grettir Haraldsson frá Verkvörðu (Teams).
Lagt fram minnisblað um stöðu viðgerða eigna sem skemmdust í jarðhræringum.
Bæjarráð heimilar að haldið verði áfram viðgerðum eignanna eins og fram kemur í minnisblaðinu þar sem fyrir liggur heimild í fjárhagsáætlun 2025.3. Rekstur slökkviliðs í Grindavík og öryggisgæsla í bænum
Lögð fram greinargerð frá Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík, dags. 16. júlí sl. um rekstur slökkviliðs í Grindavík og öryggisgæslu í bænum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja viðræður um útfærslu samkomulags um verkefni og rekstur slökkviliðsins í Grindavík.4. Styrkir til Grindavíkurbæjar vegna uppbyggingar samfélagsins
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs. Frá Rauða krossinum: Aðalheiður Jónsdóttir, Jón Brynjar Birgisson, Gísli Rafn Ólafsson og Elfa Dögg Leifsdóttir.
Farið yfir samskipti milli Grindavíkurbæjar og Rauða kross Íslands varðandi úthlutanir styrkja til uppbyggingar samfélagsins í Grindavík og að efla viðnámsþrótt íbúa í Grindavík.
Í september nk er fyrirhugaður stöðufundur þar sem gert er ráð fyrir að ítarleg samantekt á ráðstöfun styrkja liggi fyrir.5. Farsældarráð barna
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Grindavíkurbær á þrjá fulltrúa í farsældarráði þar af tvo kjörna fulltrúa. Bæjarráð tilnefnir.
Tillaga um fulltrúa í farsældarráð:
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri
Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar
Birgitta Rán Friðfinnsdóttir bæjarfulltrúi
Samþykkt samhljóða.
Tillaga um fulltrúa í framkvæmdahóp:
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri
Eggert Sólberg Jónsson sviðsstjóri
Samþykkt samhljóða.6. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram frumspá um rekstur ársins 2026 ásamt drögum að sviðsmyndum fyrir árin 2027-2029.7. Frumvarp til laga um almannavarnir - Beiðni um umsögn
Lögð fram umsögn Grindavíkurbæjar um frumvarp til laga um almannavarnir.