Bæjarráð Grindavíkur - 1606. fundur
- 08.03.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1606
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Heimgreiðslur til foreldra 12 mánaða gamalla barna sem fá ekki daggæslu fyrir börn sín
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að reglum um heimgreiðslur vegna barna sem eru á biðlista eftir vistun hjá dagforeldri eða leikskólaplássi.
Málinu er frestað til næsta fundar.2. Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um námsvist utan lögheimilissveitarfélags.
Bæjarráð samþykkir erindið út þetta skólaár.3. Möguleg móttaka flóttamanna frá Úkraínu
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bókun frá fulltrúa B-lista:
Fulltrúi B lista leggur til að Grindavíkurbær búi sig undir og bjóði fram aðstoð í móttöku flóttamanna fjölskyldna frá Úkraínu.
Þó að húsnæði sé af skornum skammti í Grindavík, þá getur bærinn sem stendur vel ekki skorast undan við þessar hryllilegu aðstæður sem komnar eru upp.
Leggur fulltrúi B lista því til að fela sviðstjóra félagsmálasviðs að bjóða aðstoð Grindavíkurbæjar og vera tilbúin að móttaka flóttafólk ef til þess kemur.
Bæjarráð Grindavíkur samþykkir að leita til Grindvíkinga um laust húsnæði sem getur tekið við flóttafólki frá Úkraínu og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.4. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram ásamt uppfærðri grunnmynd fyrir 2. hæð.5. Framkvæmdir við Hópsskóla - 2. áfangi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lokaskýrsla framkvæmda við Hópsskóla lögð fram.6. Beiðni um viðauka - Innréttingar í heimilisfræðistofu í grunnskólanum við Ásabraut
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram viðaukabeiðni vegna innréttinga i heimilisfræðistofu Grunnskólans við Ásabraut.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 2 milljónir. Fjármögnun verði með lækkun verkefnis vegna Skólabrautar 8-10 að fjárhæð 1.500.000 kr. og lækkun á handbæru fé að fjárhæð 500.000 kr.7. Beiðni um viðauka - Loftræsikerfi leikskólans Laut
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram samantekt vegna loftræstikerfis í Leikskólanum Laut.
Bæjarráð vísar erindinu í vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs.8. Beiðni um viðauka - Öryggismyndavélakerfi í íþróttamiðstöð
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram viðaukabeiðni vegna öryggismyndavélakerfis í íþróttamiðstöð Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð frestar málinu og óskar eftir nánari útfærslu á verkefninu.9. Malbiksframkvæmdir 2022
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Niðurstaða verðkönnunar vegna malbiksframkvæmda fyrir árið 2022 lögð fram.10. Beiðni um viðauka - Búnarkaup Slökkviliðs Grindavíkur
Málinu er frestað til næsta fundar.
11. Beiðni um viðauka vegna ráðningar starfsmanna í Slökkvilið Grindavíkur
Málinu er frestað til næsta fundar.
12. Bæjarmálasamþykkt Grindavíkur - tillaga að breytingu
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillaga að breytingum á bæjarmálasamþykkt lögð fram til kynningar.13. Valkostagreining Sveitarfélagsins Voga
Vogar bjóða til óformlegs samtals til að ræða hvort áhugi sé til staðar af hálfu Grindavíkur að skoða hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna tveggja.
14. Tækifærisleyfi - Körfuknattleiksdeild Grindavíkur
Lögð fram beiðni um umsögn vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi vegna kvennakvölds í íþróttamiðstöðinni í Grindavík, 11. mars 2022, kl. 19:00-01:30.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.15. Víkurfréttir - stuðningur
Lagt fram erindi frá ritstjóra Víkurfrétta um stuðning við sjónvarpsþáttaframleiðslu.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 396.800 kr.