Bæjarráð Grindavíkur - 1642. fundur
- 02.05.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1642
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Garðsláttur eldri borgara
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tölvupóstur frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar, dags. 14.04.2023 er lagður fram.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram og leggja tillögur fyrir næsta fund bæjarráðs.2. Sorpflokkun við heimili - Borgað þegar hent er, innleiðing
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að dreifibréfi og kynningu fyrir framlínustarfsfólk.
Fyrirhugað er að deila út tvískiptri tunnu á hvert heimili nú í lok maí eða byrjun júní ásamt því að merkja þær tunnur sem fyrir eru.
Einnig lögð fram drög að nýrri gjaldskrá.3. 50 ára afmælismerki Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samkvæmt erindisbréfi skal 50 ára afmælisnefnd láta hanna afmælismerki sem fangar anda kaupstaðarafmælisins.
Lagt er til að skoða ásýnd og hönnunarstaðal fyrir Grindavíkurbæ í leiðinni.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.4. Leiksvæði vestan Víkurbrautar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagksrárlið.
Lögð fram tillaga um niðursetningu á nýjum ærslabelg.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og sviðstjóra skipulags- og umhverfisviðs er falið að útfæra málið.5. Siðareglur kjörinna fulltrúa Grindavíkurbæjar
Lögð fram drög að breytingum á siðareglum kjörinna fulltrúa Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð vísar siðareglunum til staðfestingar í bæjarstjórn.6. Heimgreiðslur til foreldra 12 mánaða gamalla barna sem fá ekki daggæslu fyrir börn sín
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að heimgreiðslur verði í samræmi við bókun fræðslunefndar og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að útbúa reglur í samræmi við það og leggja þær fyrir bæjarráð.7. Áhyggjur af stöðu skólahjúkrunar
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram bókun fræðslunefndar á fundi nr. 130 þann 17. apríl sl.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hafa samband við stjórnendur HSS.8. Landskerfi bókasafna - Aðalfundur 2023
Boðað er til aðalfundarins þriðjudaginn 9. maí 2023 kl. 14:30.
Bæjarráð samþykkir að Andrea Ævarsdóttir, forstöðumaður bókasafnsins, verði fulltrúi Grindavíkurbæjar á fundinum.