Bæjarráð Grindavíkur - 1613. fundur
- 21.06.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1613
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem 6. mál: 2201007 - Fjárfesting 2022 - Stúka og tafla í nýjan íþróttasal.
Samþykkt samhljóða.
1. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Staðan á hönnun og útboði vegna félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð lögð fram.2. Framkvæmdir við æfingasvæði við golfvöll
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Framkvæmdir við æfingasvæði við golfvöll teknar til umræðu. Til að ljúka verkefninu og að sá í svæðið þarf aukið fjármagn sem áætlað er að nemi 5 milljónum króna. Bæjarráð samþykkir viðauka að fjárhæð 5.000.000 kr. sem verði fjármagnaður með lækkun á fjárfestingarverkefni nr. 32-110206, Ásabraut 2, klæðning að utan.3. Viðgerð á stíg frá Grindavík vestur að golfvelli 2022
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Verðtilboð frá verktaka í viðgerðir á hjóla- og göngustíg að golfvelli lagt fram. Bæjarráð samþykkir að hefja verkið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.4. Fráveita Grindavíkurbæjar - dælulögn frá Seljabót
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillaga að útfærslu til að bregðast við flóði á Miðgarði lögð fram til umræðu.5. Gerðavellir 17-19, malarsvæði á lóð
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er heimildar bæjarráðs til að setja kantstein við lóðarmörk Gerðavalla 17-19 við Hólavelli og tyrfa svæðið fyrir innan.
Bæjarráð samþykkir erindið.6. Fjárfesting 2022 - Stúka og tafla í nýjan íþróttasal
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt er til að hafa sæti fyrir áhorfendur í allri stúkunni í nýja íþróttasalnum. Það felur í sér aukinn kostnað.7. Uppfærð viðbragðsáætlun vegna eldgoss við Grindavík
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Uppfærð viðbragðsáætlun vegna eldgoss við Grindavík frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra lögð fram til upplýsinga.8. Endurskoðun á systkinaafslætti
Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að endurskoða systkinaafslátt enda er kveðið á um slíkt í meirihlutasamningi B, D og U þar sem tekið er fram að markmiðið er að lækka gjöld til foreldra og aðlaga afslætti. Meirihlutinn er nú þegar með málið í vinnslu í samráði við sviðsstjóra og mun leggja málið fyrir þegar upplýsingar á faglegum grundvelli liggja fyrir.
9. Niðurgreiðsla til foreldrar barna yngri en 18 mánaða sem nýta sér þjónustu dagforeldra
Málinu frestað og óskað eftir því að sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs mæti á næsta fund bæjarráðs.
10. Landskerfi bókasafna - Aðalfundur 2022
Lagt fram fundarboð aðalfundar Landskerfa bókasafna miðvikudaginn 29. júní 2022. Bæjarráð samþykkir samhljóða að Andrea Ævarsdóttir verði fulltrúi Grindavíkurbæjar á fundinum.